Nýr vefur Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar

Nú fyrir örfáum dögum birtist nýr vefur Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar en slökkviliðið hafði haldið úti vef um árabil en nú fór hann í endurnýjun lífdaga. Vefurinn er glæsilegur og mega sumir fara að vara sig en nokkur slökvilið halda úti mjög svo vönduðum og öflugum vefum með greinagóðum upplýsingum um liðin, búnað, starfsmenn ofl.ofl.

Upplýsingar um þá vefi getið þið skoðað á síðunni okkar undir tenglar.

Sérstaklega er öll umgjörð vel vönduð og myndir efst á hverri síðu úr starfi slökkviliðsins koma vel út.

Vef Slökviliðs Ísafjarðarbæjar getið þið skoðað hér.


Ísafjörður