Nýverið var afhent Panther slökkvibifreið á Kastrupflugvöll

Fyrir stuttu var afhent slökkvibifreið af Rosenbauer Panther 6 x 6 gerð til slökkviliðsins á Kastrup flugvelli. Þetta er fyrsta bifreiðin af þremur sem þeir eiga að fá.    
Þessi gerð er til í mörgum útfærslum allt frá 4 x 4 og í 8 x 8 undirvagna. Með hefðbundnum úðabyssum eða úðabyssum á  armi.

Skoðið til fróðleiks heimasíðu Rosenbauer þar sem þessar gerðir eru sýndar.

Eins má sjá hér á þessari síðu hvar svona slökkvibifreiðar eru en þær eru nú fjölmargar í Evrópu og m.a. í Noregi, Finnlandi og Danmörku.

Hér má svo sjá myndir af bifreiðinni á Kastrup flugvelli.


Rosenbauer Panther 6 x 6