Nýverið var haldið námskeið fyrir þjónustuaðila handslökkvitækja

Nú í mars var haldið námskeið fyrir þjónustuaðila handslökkvitækja á vegum Brunamálastofnunar en tveir starfsmanna okkar sóttu það námskeið og verða því fimm starfandi réttindamenn i slökkvitækjaþjónustu okkar ef að líkum lætur. Á námskeiðinu kom upp fyrirspurn um merkingar þeirra slökkvitækja sem flutt eru til landsins. Spurt var hvort  það væri ekki nauðsynlegt að upplýsingar um  slökkvimátt kæmu fram á  leiðbeiningarmiðum slökkvitækja. Svarið var að það væri ekki nauðsynlegt. Þetta þótti okkur einkennilegt. Við gerðum því fyrirspurn til Stofnunarinnar og hefur svar borist og það er í samræmi við þekkingu okkar sem fyrir var og þjónustu og innflutning okkar á slökkvitækjum en tæki okkar eru samkvæmt kröfum CE merkt og fylgja EN3-7 staðlinum eins vera skal.

Í svari Stofnunarinnar kom fram að það er krafa krafa samkvæmt. gr. 165.1 í byggingarreglugerð nr. 441/1998 um að fylgja EN3 staðinum þar sem þetta kemur fram og tækin eiga að  vera CE merkt. Einnig að samkvæmt EN 3-7staðlinum grein 16.2 eiga að koma fram upplýsingar um slökkvimátt þ.e. hversu margar einingar af A og B tekið hefur og svo hvort það nái C flokkun. Það  á einnig að koma fram magn og gerð slökkvimiðils sem á tækinu er.

Það hlýtur það að vera nauðsynlegt að upplýsingar um gerð slökkviefnis og mátt liggi  fyrir í leiðbeiningum á slökkvitæki. Sú ástundum m.a. þjónustustöðva að setja  miða merkta sér  á slökkvitæki sem eru eingöngu með almennar upplýsingar  um notkun tækisins en  ekki upplýsingar um slökkvimátt eða slökkviefni þ.e.  þá gerð sem er á tækinu  gerir þeim sem þjónusta eiga erfitt fyrir svo ekki sé  talað um þann sem á tækið og hefur valið það með tilliti til krafna sem gerðar eru til slökkvitækja sem honum ber að hafa. Við þekkjum þetta að fenginni reynslu.

Flest allar þjónustustöðvar hafa svipaða miða þar sem fram koma dagsetningar þjónustu og tilheyrandi upplýsingar og óþarft er að líma þann miða yfir mikilvægar upplýsingar. Nóg er plássið.

Brunamálastofnun mun taka upp málið á fundi á morgun mánudag en við höfum óskað eftir að þetta verði leiðrétt og sú leiðrétting berist hverjum námskeiðsþátttakanda.