Októbertilboð á Rosenbauer Heros hjálmum

Rosenbauer Heros hjálma eigum við á lager í ýmsum litum. Helstu litir eru hvítir, gulir og rauðir en einnig má fá þá í bláu, svörtu, gráu og appelsínrauðu. Tvær gerðir og er helsti munur á milli Heros I og Heros II að Heros II er ekki með svörtu kantbandi, svitagjörð er úr leðurlíki og önnur gerð af hlífðargleri.

Hjálmarnir eru viðurkenndir samkvæmt EN 443 CE. Hægt er að fá hjálmana í ýmsum útfærslum en við höfum kosið að bjóða þá í tveimur útfærslum sem eru í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru hérlendis.

Við þessar gerðir er hægt að fá festingar fyrir maska, ljós og fjarskipti. Á Heros hjálmum er hlífðargler með rispuvörn að utan og móðuvörn að innan. Mjög auðveld stilling á höfuðbandi með því að snúa stillihnappi sem er utan á hjálminum. Með Heros I fylgir hreinsiefni og klútur.

Í október 2004 bjóðum við Heros hjálma á kynningarverði eða meðan birgðir endast.

Verðlistaverð á Heros I er kr. 27.038 án VSK. Verðlistaverð á Heros II er kr. 18.590 án VSK.

Báðar gerðirnar bjóðum við með 20% afslætti í október og er þá verðið á
Heros I kr. 21.630 án VSK en Heros II kr. 14.872 án VSK.