Opnuð tilboð vegna slökkvitækja í grunnskóla

Í dag voru opnuð tilboð vegna verðkönnunar Fasteignastofu Reykjavíkurborgar nr. 110  “Slökkvitæki í grunnskóla”  ISR verk 10403. Eftirfarandi tilboð bárust.



1. Slökkvitækjaþjónustan Prófun  kr. 3.261.942 58.25% 
2. Nortek ehf kr. 2.998.829 53,55%
3. Öryggismiðstöð Íslands kr. 2.307.713 41,21%
4. Ólafur Gíslason & Co. h.f. kr. 3.078.693 54,98%
5. Securitas h.f.  Tilboð A kr. 3.985.232 71.16%
  Tilboð B kr. 3.031.366 54,13%
  Kostnaðaráætlun kr. 5.600.000 100.00%

Eftir á að fara yfir tilboðin en það verður að segjast eins og er að hart hlýtur að vera á dalnum en um leið veltir maður því fyrir sér hvaða viðmið sé í kostnaðaráætlun sem er all fjarri lagi. Samkeppnin í sölu og þjónustu slökkvitækja hefur verið hörð ekki bara undanfarið heldur um langan tíma.

Tilgangur verðkönnunar er m.a. sú að skipta á út dufttækjum og vatnstækjum  úr skólum borgarinnar og setja léttvatnstæki og kolsýrutæki. Fyrirvari á þessari verðkönnun var ótrúlega stuttur eða frá fimmtudeginum 30. september og til dagsins í dag eða 3 virkir dagar. Þrátt fyrir stuttan frest bárust spurningar varðandi verkið og svör við þeim en þær voru eftirfarandi.

Spurning: Eru gerðar sérstakar kröfur um slökkvimátt, hvað margar A og B slökkvieiningar?

Svar: Í leiðbeiningum Brunamálastofnunar nr. 165.BR1, sem bent er á í verklýsingarkaflanum um "Ný slökkvitæki", er tafla um eiginleika handslökkvitækja og er þar um lágmarksgildi að ræða. Taflan hefur verið skönnuð og fylgir með sem viðhengi. Eins og segir neðst á síðunni í skýringu 2 eru stærð, slökkvigildi og tæmingartími skv. EN3. Þyngd og langdrægni eru m/hliðsjón af BS5306. Léttvatn er nefnt froða í töflunni og er miðað við tegundina sem er í tveimur efri línunum þar.

Spurning: Verða tilboðin metin með tilliti til hversu mikinn slökkvimátt tækin sem boðin eru hafa?

Svar: Tækin þurfa að uppfylla umrædda staðla, en verða að öðru leyti metin á grundvelli verðs. Slökkvimáttur umfram kröfur staðals hefur því ekki áhrif.

Spurning: Liggur fyrir yfirlit yfir slökkvitækjaþörf með tilliti til slökkvieininga í mismunandi rýmum, meðal annars í þeim tilfellum þar sem fjarlægja á tæki.

Svar: Fyrir liggur listi yfir slökkvitækjaþörf í sérhverjum grunnskóla samkvæmt forsendum sem samþykktar hafa verið af Forvarnadeild Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Val á tækjum er ekki byggt á slökkvieiningaþörf einni saman.

Það sem vakti athygli okkar var svarið við annari og þriðju spurningu. Í svari við spurningu tvö kemur fram að ekki sé metinn umfram slökkvimáttur tækjanna sérstaklega aðeins verð sem er um leið tilsögn til okkar innflytjenda slökkvitækja að vera ekki að leggja áherslu á öflugri tæki en þau sem uppfylla staðalinn.

Í svari við spurningu þrjú kemur fram að ekki er aðeins metinn slökkimáttur í hverju tilfelli fyrir sig en í svari við spurningu eitt er bent á reglur Brunamálastofnunar um val á slökkvitækjum en þar kemur einnig m.a. fram hvernig velja skuli slökkvitæki miðað við slökkvimátt. Það sem við viljum koma á framfæri er að það hefur tíðkast hér í höfuðstaðnum að skipta út slökkvitækjum þá aðallega dufttækjum og setja léttvatnstæki í staðinn sem oftast hafa mun minni slökkvigetu en það tæki sem fyrir var. Í okkar huga er aðeins verið að veikja varnir sé um sömu aðstæður að ræða og þegar það slökkvitæki sem skipt var út var sett upp. Eða var engin hugsun bak við val slökkvitæksins í upphafi ? Duftslökkvitæki velflest alla vega hjá vandaðri innflytjendum hafa slökkvimátt um 34A en velflest léttvatnstæki eru  frá 13A og þau bestu ná 27A (Jockel).

Eðlilega eru slökkvitæki með meiri slökkvimátt en staðall krefur um dýrari en þó hefur verð farið verulega lækkandi eins og sjá má í þessari verðkönnun.

Benedikt Einar Gunnarsson