Flugstoðir hafa nú fengið Scott Propak reykköfunartæki í eina af flugvallabifreiðum sínum.
Við erum nokku sáttir við þá dreifingu sem við höfum náð á skömmum tíma á nýju gerðinni af Scott
reykköfunartækjunum þ.e. þessari nýju evrópsku gerð sem reynist mjög vel eftir því sem við heyrum. Sérstaklega er
tiltekið hversu gott útsýni reykafarinn hefur um grímuna enda mjög sérstakt lag á gleri.
Tækin eru byggð upp af Scott og Sabre Contour og eru með léttustu og öruggustu reykköfunartækjum sem völ er á.
Hér getur þú skoðað
frekari upplýsingar Þau eru viðurkennd samkvæmt prEN137: 2002 class II, ásamt því að vera prófuð við
sérstakar hita og loga prófun (incorporating the stringent flame engulfment test). Viðurkennt lunga, tryggt loftflæði, 100% Kelvar vefnaður, fallhlífar sylgjur,
ný gerð stillingarbands á loftkút og auðveld endurnýjun.
Létt afrafmögnuð bakplata með Kelvar kútabandi (auðveld skipti á kútum) og stillanlegum fóðruðum ólum. Tvöfalt kerfi með
framhjáhlaupi, mælir og 55 bara flauta. Ýmsar tengingar á lofti. Bakplata stillanleg fyrir aðrar stærðir af kútum.
Tækin eru með 46 mín léttkútum og 300 bara þrýsting. Tækin eru eins og áður sagði vönduð með Kelvar tregbrennanlegum
ólum. Kútarnir eru léttkútar með 1.860 l. af lofti og vega aðeins 6,8 kg. fullhlaðnir. Þvermál 160 mm og 600 mm. langir.
Líftími minnst 15 ár. Scott Propak tækin eru með Vision 3 maska og sá maski eru um margt mjög einstakur þar sem glerið er mjög kúpt og
eykur útsýni miðað við aðrar venjulegar gerðir af möskum.