Scott reykköfunartæki til Slökkviliðs Grenivíkur

Fyrir nokkru afgreiddum við Scott Propak reykköfunartæki til Slökkviliðs Grenivíkur. Um er að ræða þá gerð sem við höfum nánast eingöngu selt til slökkvilið. Með eru Sabrecom fjarskipti í maska og við Vertex Standard VX414 talstöðvar.

SCOTT PROPAK Reykköfunartæki.
EN137:2006 Klassa II
Við bjóðum allar gerðir Scott Propak með 46 mín léttkútum 300 bar með Vision 3 maska. Fleiri möguleikar.

Scott Propak
reykköfunartækin eru byggð upp af Scott og Sabre Contour og eru með léttustu og öruggustu reykköfunartækjum sem völ er á. Þau eru viðurkennd samkvæmt EN137: 2006 class II, ásamt því að vera prófuð við sérstakar hita og loga prófun (incorporating the stringent flame engulfment test). Viðurkennt lunga, tryggt loftflæði, 100% Kelvar vefnaður, fallhlífar sylgjur, ný gerð stillingarbands á loftkút og auðveld endurnýjun. Létt afrafmögnuð bakplata með Kelvar kútabandi (auðveld skipti á kútum) og stillanlegum fóðruðum ólum. Tvöfalt kerfi með framhjáhlaupi, mælir og 55 bara flauta. Ýmsar tengingar á lofti. Bakplata stillanleg fyrir aðrar stærðir af kútum. Fróðleikur um viðhald og meðferð Scott Propak tækja.



Scott Propak

 

 
Við bjóðum aðallega Propak tæki með 46 mín léttkútum og 300 bara þrýsting. Tækin eru eins og áður sagði vönduð með Kelvar tregbrennanlegum ólum. Kútarnir eru léttkútar með 1.860 l. af lofti og vega aðeins 6,8 kg. fullhlaðnir. Þvermál 160 mm og 600 mm. langir. Líftími minnst 15 ár. Scott Propak tækin eru með Vision 3 maska og sá maski eru um margt mjög einstakur þar sem glerið er mjög kúpt og eykur útsýni miðað við aðrar venjulegar gerðir af möskum. Hægt er að fá aðrar gerðir og bendum við á síðuna um maska.

 

Scott Sabrecom 2 Traditional er fjarskiptabúnaður sem er gerður fyrir allar gerðir Scott maska PanaSeal, PanaVisor eða Vision 3. Einstök lausn á samskiptavandamálum. Sérstakt millistykki fellt í maskann með tengi í ýmsar gerðir af talstöðvum. Sérstaklega prófað við erfiðar aðstæður og náð miklum hreinleika raddar og aðlögun. Hreyfanlegur armur fyrir heyrnartól við eyra. Passar inn í flestar gerðir hjálma. Stór samskiptarofi sem þrýst er á. Mjög einföld ásetning á maska aðeins ýtt og snúið. CE viðurkenning EN137:2002 og IP67, Atex.

Scott Sabrecom 2 Traditional fjarskiptabúnaður

 

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....

 

.