Skápar fyrir slökkvitæki.

Við eigum fyrirliggjandi nokkrar gerðir skápa úr plasti með glæru loki fyrir slökkvitæki í stærðunum 6 til 12 kg. Sala í slíkum skápum hefur aukist að undanförnu vegna mikilla byggingaframkvæmda.

Væntanlegir eru nú skápar úr PE plasti sérstaklega á bíla og vinnuvélar fyrir 6 kg. slökkvitæki. Mjög sterkir skápar sterkari en trefjaplastskápar. Um tvær gerðir er um að ræða hefðbundna gerð með loki sem tækið er lagt ofan í en svo gerð þar sem slökkvitækinu er stungið á endann ofan í skápinn.

Minnum svo á venjulegar festingar fyrir slökkvitæki í bíla, skip og báta.  Sjá myndir.