Skápar fyrir slökkvitæki

Við höfum um árabil flutt inn og selt skápa fyrir slökkvitæki sem ætlaðir eru utan á stærri bifreiðar eins og olíuflutningabifreiðar, vöruflutningabifreiðar og vinnuvélar. Þessa skápa höfum við flutt inn frá Englandi og Þýskalandi.  
Því miður hefur verð hækkað all verulega á þessum skápum en nú höfum við fundið annan birgja með mun betra verð eða 40% til 49% lægra verð. Gæði og viðurkenningar eru þær sömu. Þessa skápa erum við búin að fá á lager og þeir eru til afgreiðslu strax.

6 kg. og 12 kg. skápar fyrir slökkvitæki
Skáparnir eru úr sérstöku PE plastefni sem er formað og er með styrkleika á við trefjaplast.  Við munum vera með tvær gerðir SEC04 fyrir 6 kg. og 12 kg. slökkvitæki.

Stærðir eru:

   6 kg. 700x300x253mm
12 kg.  830x310x263mm

Í skápana þarf ekki að setja venjulegar bílafestingar fyrir tækin þar sem þeir koma með þar til gerðri ól til að spenna tækin niður.