Við fengum það verkefni hjá Flugstoðum að setja úðabyssu á MB Unimog TLF 1700 slökkvibifreið en sú bifreið var áður
slökkvibifreið á Þórshöfn.
Verkinu er nú lokið en ásetning var framkvæmd hjá Bíley á Reyðarfirði, en einnig kom Launafl við sögu þar sem þeir
smíðuðu allar ryðfríar festingar og þá nippla og tengi sem þörf var á.
Úðabyssan er af sömu gerð og minni byssan á ISS flugvallarbifreiðinni á Egilsstöðum eða Akron Brass
Firefox
með 52 mm. inntaki en hámarksafköst eru 1.900 l/mín. Úðastúturinn er rafstýrður með stýripinna í ökumannshúsi. Byssan
vegur aðeins um 15 kg.
Dælan í bifreiðinni er FP 8/8 af gerðinni Rosenbauer 63/125. Afköst eru sögð á dælunni 2.700 l/mín en það á eflaust við
við 0 m. soghæð.
Sér froðutankur er í bifreiðinni svo lagt var frá honum að úðastút og á lögnina settur froðublandari frá Akron Brass af
gerðinni
Advantage 2302 sem skilar 950 l/mín en er faststilltur
á 3%.
Rafstýrður loki af
Swing Cut gerð var settur á
froðulögn en hann er einnig frá Akron Brass.
Ákveðið var að setja ekki rafstýrðan loka á 4" lögnina frá tank að dælu heldur hafa hann opinn en ef til þess hefði komið
hefðum við valið samskonar loka þ.e.
Swing Cut 8840 gerð en
hann er 4" og aðeins 8 sek. að opnast að fullu.
Ýmiss búnður var svo settur í bifreiðina eins og Protek 366 handlínustútur, 45 mm gular Ninbo slöngur og 3" hvítar Ningbo slöngur, Double
Lounce fælubyssa, Towalex léttvatn, greinistykki, lyklar, minnkanir, tengi, ýmis verkfæri og hlífðarfatnaður.
Smellið á myndina og sjáið fleiri myndir.