Slökkvilið Grenivíkur fær Tohatsu VC82ASE brunadælu

Í dag sendum við til Grenivíkur Tohatsu brunadælu sem er sú afkastamesta í röðinni en hún skilar 2.050 l/mín við 6 bar og 3m. soghæð um 6m. barka. Einstök í sinni röð og þyngd hennar er aðeins 94 kg. Dælan er búin bæði raf og handstarti. Snúningssogdæla er aðeins 5,5 sek. að sjúga úr 3ja m. hæð um 6m. langan 4" barka. Dælan er vatnskæld um soghlið og er með sjálfvirka yfirhitavörn.
Dælan komin í kassa og flutningabílinn
Úttök eru tvö 2 1/2" snúanleg og með lokum. Inntak er 3 1/2" með 4" Storz tengi. Afköst eru miðað við 3ja m. soghæð eins og áður sagði 2.050 l./mín við 6 bar, 1.800 l./mín við 8 bar og 1.500 l./mín við 10 bar. Sem sagt geysiöflug dæla. einstaklega auðveld í notkun og í trefjaplasthúsi. Með fylgir ljóskastari.

Við Eyjafjörðin eru fleiri áhangendur Tohatsu og Slökkvilið Akureyrar á að við höldum minnsta kosti tvær ef ekki þrjár Tohatsu brunadælur en enga svo öfluga sem þessa þó sú nýjasta nálgist hana í afköstum.

Við flytjum dælurnar beint frá Japan og yfirleitt er afgreiðslutími ekki nema um hálfur mánuður. Varahlutaþjónusta hjá Tohatsu er frábær annað er ekki hægt að segja. Einstaklega stuttur afgreiðslufrestur. Klikkið á dælumyndina og fáið allar upplýsingar um allar gerðir af Tohatsu dælum.

Tohatsu VC82ASE brunadæla sú öflugasta