Slökkvilið Norðurþings fær Wiss slökkvibifreið


Slökkvilið Norðurþings fékk Wiss slökkvibifreið fyrir skömmu en þessi bifreið er sú 59. sem við afgreiðum frá okkur. Bifreiðin er byggð á Scania undirvagn og er yfirbyggð hjá Wiss í Póllandi. Þetta er önnur slökkvibifreiðin sem Slökkvilið Norðurþings hefur fengið hjá okkur.

Slökkvibifreið Slökkviliðs Norðurþings


Yfirbygging er úr trefjaplasti og innréttingar úr ál og stálefnum. 4000 l. Ruberg dæla há og lágþrýst ásamt One Seven froðuslökkvikerfi. Tveir mónitórar eru á bifreiðinni á þaki og á framstuðara.

Allar frekari upplýsingar um bifreiðina má lesa um hér.

Hafið samband við sölumenn okkar í síma 568-4800 eða gegnum netfangið oger@oger.is ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum.

logo