Sneisafullur gámur lagður af stað

Við erum þessa dagana að endurskoða verð og afslætti til viðskiptavina okkar. Gera má ráð fyrir hækkunum og þær eru að verða að veruleika þessa dagana.
Það ætti að vera óþarft að upplýsa um ástæður hækkana en þær má lesa um og hlusta á daginn inn og út í fjölmiðlum.

Við erum líka að undirbúa okkur fyrir hina árlegu jólasölu og þiggjum það að þeir sem ætla að gera þar stóra hluti og ætla að vinna með okkur hafi samband sem fyrst.

Við eigum væntanlega innan fárra daga jóníska reykskynjara og eins þráðlausa senda en við erum sem stendur uppiskroppa með þá.