Stærra húsnæði

Við höfum stækkað húsnæði okkar í Sundaborg og er nú rúmbetra sýningarsvæði fyrir eldvarnarvörur og sérhæfðan búnað fyrir slökkviliðin ásamt því að lagerrými er mun stærra.

Við vonum að með þessu aukist þjónusta og bjóðum viðskiptavini okkar velkomna.

Breytingum er ekki lokið. Það á eftir að setja upp nýja upprennanlega hurð fyrir vörumóttöku ásamt því að inngönguhurð í vörugeymslu verður endurnýjuð. Þar fyrir innan verður lokað af og er það því ósk okkar að þið viðskiptavinir venjið komur ykkar inn um annan hvorn aðalinnganginn og komið beint upp á aðra hæð þar sem þið fáið afgreiðslu.

Munið að koma um annan hvorn aðalinnganginn.