SuperPASS II Viðvörunarflauta (ýla)

SuperPASS II til Ísafjarðar

Interspiro selur SuperPASS II non-movement alarm eða Viðvörunarflautu. Slökkvilið Ísafjarðar var rétt í þessu að panta hjá okkur svona viðvörunarflautur (ýlur).

Ef að slökkviliðsmaður verður meðvitundarlaus við björgunarstörf þá getur SuperPASS II Viðvörunarflautan bjargað lífi hans. Þess vegna eru svona skynjarar skylda samkvæmt lögum í mörgum löndum. Hreyfingarleysi í 18-23 sekúndur þá fer SuperPASS II í Pre-Alarm mode eða Fyrir-Viðvörunarham. Við það blikka stöku sinnum fjögur rauð LED ljós og hljóðmerki heyrist sem stigmagnast í styrk. Eftir 30-35 sekúndur fer SuperPASS II í Full Alarm mode eða Fullan Viðvörunarham. Við það blikka LED ljósin mjög hratt og hljóðmerkið verður einstaklega hávært og breytir reglulega um tón.

SuperPASS II Hreyfingarleysis viðvörunarflauta
 SuperPASS II stærð

SuperPASS II er einstaklega handhægur búnaður og auðvelt að staðsetja á þann búnað sem þegar er fyrir hendi hjá slökkviliðsmönnum. Hægt er að setja Viðvörunarflautuna í gang með því að smella á hnapp og hægt er að slökkva á henni með því að smella samstundis á hnappana á sitt hvorri hliðinni.

Einnig er hægt að versla SuperPASS II Viðvörunarflautuna með hitaskynjara. Hitaskynjarinn virkar þannig að eftir ákveðinn tíma við mikinn hita þá fer Viðvörunarflautan í gang. Upplýsingar um hitastig og tímamörk má finna hér undir Technical Data.