Það var vetrarlegt á leiðinni í Snæfellsbæ að undirrita

samning um kaup á slökkvibifreið af gerðinni ISS Wawrzaszek TLF 4000/400 á Scania P420 undirvagn í dag. Bifreiðin er nánast eins og sú bifreið sem fór síðastliðið haust á Fáskrúðsfjörð fyrir Slökkvilið Fjarðabyggðar þar.
Hamrar i klakaböndum
Þessi bifreið verður hrein viðbót við þann bílakost sem fyrir er en á Slökkvistöðinni í Ólafsvík er Ziegler bifreið sem er að líkindum eina slökvibifreiðin sem hefur verið flutt inn tilbúin með öllu ný m.a. með loftpressu fyrir reykköfunartæki. Að auki er á slökvistöðinni annar gamall og svo Rosenbauer Fox laus brunadæla sem afkastar 1.600 l/mín. Slökkvistöðin lítur mjg vel út og hafa verið gerðar miklar endurbætur þar.



Mikið er til góðum búnaði eins og t.d. TFT úðastútar og brunaslöngur bæði hvítar og rauðar. Að líkindum nægir það í  nýju bifreiðina.  Í Ziegler bifreiðinni eru Holmatro björgunartæki. Í nýju bifreiðinni verða Scott  Propak  reykköfunartæki.
Á myndinni eru Sigurður varaslstj. Benedikt frá Ó.G. & Co hf, Kristinn bæajarstjóri og Svanur slökkvistj. við undirskrift samningsins
Í ökumannshúsi eru sex til sjö sæti, ljós, sjálfstætt hitakerfi (Webasto miðstöð), handstýrður ljóskastari, hitaðir speglar og aukaspeglar, ljós í þrepum sem kvikna við opnun hurða, endurskin á hurðum. útvarp FM/AM og Motorola forrituð talstöð. Öryggisbelti í sætum og áklæði á sætum hreinsanlegt.  Fjaðrandi ökumannsæti, sírena með hljóðnema, blá stróbljós í grilli að framan, aftan og hliðum uppi, strópljósarenna á þaki og lofthorn. 


Hljóðmerki tengt bakkljósi.  24V rafkerfi, rafall 2.200W og rafgeymar 2 x 180Ah. Höfuðrofi.  Litur bifreiðar er grár, svartur og rauður.  Varahjólbarði fylgir og festing hans.
TLF4000/200 slökkvibifreið
Efni yfirbyggingar úr ryðfríum efnum, trefjaplasti, álplötum og álprófílum.  Þak er vinnupallur með upphleyptum álplötum, burður 450 kg./m2.  Þrír skápar á hvorri hlið og einn að aftan. Rykþéttar rennihurðir úr áli með læsingum. Ljós kviknar í skápum við opnun og eins er rofi í ökumannshúsi. Vinnuljós sem gefa 5 til 15 Lux í 1 m. fjarlægð.  Hillur og pallar með læsingar í opinni stöðu.


Þær innréttingar sem staðið geta 25 sm. út frá bifreiðinni eru með endurskin. Öll handföng hurðir og lokur eru gerðar fyrir hanskaklæddar hendur. Vatnshalli í skápum. Yfirborð þaks og gólf í skápum klætt með upphleyptum álplötum. Vatnstankur 4 m3 úr trefjaplastefni með tilheyrandi búnaði. Froðutankur 200 dm3 úr trefjaplastefnum með tilheyrandi búnaði. Möguleiki á að fylla froðutank frá þaki og svo frá jörðu. Brunadælan er staðsett að aftan, upphituð frá kælikerfi bifreiðar.
TLF4000/200 slökkvibifreið
Dælan er seltuvarin úr bronzi og stáli. Tveggja þrepa 4000 l/mín við 10 bar og 250 l/mín við 40 bar. Hámark vatns á háþrýstiþrepi 150 l/mín. Gerð Ruberg R40/2.5. Froðukerfið er frá tanki og við sog frá opnu. Háþrýstislöngukeflin ¾" með 90 m. slöngur, úðastúta stillanlega og með froðutrektum. Froða í gegnum úðastút. Slöngukeflin eru bæði raf og handdrifin.

Úttök frá dælu eru fjögur 75mm til hliðanna inn í skáp. Eins er lögn að háþrýstislöngukeflum. Dælan getur fyllt á tank og eru afköst 1.700 l/mín. Sog er annars vegar 2 x 110mm Ø og 75mm Ø. Lögn frá tanki að dælu 125mm Ø. Mælaborð dælunnar er með sogmæli, lágþrýstingsmæli, háþrýstingsmæli, vatnsmæli, froðumæli, snúningshraðamæli dælu, stöðvunarrofa á bílvél, klst. mæli og viðvörunarljós fyrir olíuþrýsting og kælivatn. Dælan er einstaklega vel útbúin.  Að vatnstanki er eitt inntak með einstreymisloka Storz B ásamt kúluloka til að taka vatn frá brunahana með þrýstimæli.
TLF4000/200 slökkvibifreið Dælan er búin rafstýrðum gangráð sem tryggir stöðugan þrýsting í þrýstihluta dælunnar. Eins er dælan með varnarbúnað gagnvart óhreinindum sem valdið geta skemmdum.  Froðublandari er mekanískur er frá 1% til 3% á allt afkastasvið dælunnar. Frávik ±0,5%. Allt froðukerfið er gert úr efnum sem þola froðu og er úr ryðfríum efnum. Ryðfrítt stál er notað.  Hægt er að dreina allt dælukerfið með einum loka.

Miðstöðvar eru í einhverjum skáp í yfirbyggingu, dælurými og ökumannshúsi af Webasto Air Top gerð. Þessar miðstöðvar verja vatns og froðukerfi fyrir frosti allt að -25°C. Á soghlið dælunar er síubúnaður sem verja á hana óhreinindum bæði frá opnu og vatnstanki. Tryggir örugga notkun dælunnar. Ljósamastur er loftdrifið með ljóskösturum 2 x 1000W. og snúan og veltanlegir með stýringu. PowerTek rafall er við vél og skilar 6 kW  beintengdur ljósamastri.

Á þaki verður úðabyssa með froðustút sem afkastað getur 3.200 l/mín. Hún lyftist upp þegar vatni er hleypt á hana með fjarstýrðum loka.

Eins er í mælaborði í ökumannshúsi ljós fyrir vatns og froðutank, ljósamastur eða úðabyssu, hurðir og ástig opin, hleðslutengingu, skápaljós og loftflautu. Öllum miðstöðvum stýrt þaðan.

Öll gólf og ástig í skápum klædd með upphleyptu áli. Prófílar sem er stillanlegir í hæð eða breidd í skápum fyrir hillur og innréttingar. Helstu innrettingar eins og slöngurekkar snúanlegir veggir og pallar verða í bifreiðinni.

Sjá frétt á heimasíðu Snæfellsbæjar.