Þjónustuaðilar slökkvitækja - Gæði Lifeco slökkvitækja.

Við höfum hugsað okkur að setja inn á heimasíðuna upplýsingar til þeirra aðila sem þjónusta slökkvitæki okkar þar sem allir fá ekki dreifibréf okkar um nýjungar eða breytingar þar sem þeir eru ekki í viðskiptum við okkur á slökkvitækljum. Þannig geta þeir aðilar fylgst með breytingum á eftirliti og þjónustu á þeim slökkvitækjum sem við flytjum inn.

Breyting hefur orðið á nýrri gerðum mæla á Lifeco slökkvitækjunum. Skipt hefur verið um gerð og er örmjóa gatið sem ætlað var til prófunar á fjöðrinni í mælinum nú horfið. Aftur á móti er gatið á mælinum áfram en nú þarf að prófa mælinn með áhaldi sem gefur þrýsting á vísirinn svo hann hreyfist. Falli hann á sama stað aftur eftir prófun er mælir í lagi. Áhaldið er lítil stimpil loftdæla sem við erum búnir að biðja framleiðanda um að senda okkur nokkur eintök af.

Á eldri gerðum Lifeco slökkvitækja er lítið agnarsmátt gat á mæli með álímdri plasthimnu yfir. Mælarnir eru af EBUR gerð sem er virtur þýskur framleiðandi.

Ef pinna er stungið í gatið og þrýst léttilega á færist vísir niður á við og ef þrýstingur er eðlilegur á tækinu fer hann upp í sömu stöðu aftur. Þetta er aðferð til að yfirfara mæli og þrýsting tækisins samtímis. Við höfum ekki rekist á aðra gerðir með þessum frábæru eiginleikum.

Á Jockel slökkvitækjum er gat á mælisskífu en ekki á gleri en þau tæki eru með sér áfyllingarloka.

Slökkvitæki sem uppfylla IST-EN3 staðalinn eiga að hafa þennan eiginleika.

Einfalt og öruggt.