Tohatsu kynnir nýja brunadælu með fjórgengisvél

Okkur hafa borist upplýsingar um Tohatsu VF53AS brunadæluna sem koma mun á markað hérlendis fljótlega. Þetta er fyrsta  fjórgengis  brunadælan með rafeindastýrðri eldsneytis dælu sem framleidd er í Japan. Við höfum um nokkurt skeið boðið Tohatsu dælur hérlendis og eru nokkrar í notkun en þær eru allar með tvígengisvélum en þær hafa reynst mjög vel.  Þær eru gangvissar, öruggar, afkastamiklar, léttar og fyrirferðalitlar. Við eigum nokkrar á lager nú á góðu verði. Tohatsu dælurnar eru þær dælur sem samsatarfsaðilar okkar í Póllandi bjóða með slökkvibifreiðum sínum. Sjá frekari upplýsingar um þær hér.

Nýja fjórgengis brunadælan nefnist VF53AS og er í rekstri mjög umhverfisvæn, lágvær, sparneytin en gangviss. Vélin er 3ja strokka. Hún hefur svokallaða ECU nema sem skynja umhverfisaðstæður til m.a. að auðvelda ræsingu. Rafeindastýrð eldsneytisinngjöf og innsog. Í húsi sem dregur úr hávaða og er vatnsvörn fyrir vél. Lofttæmidæla úr áli mjög létt og afkastamikil.

Tohatsu VF53AS Brunadæla

Dælan er búin ýmsum eiginleikum eins og uppsog er sjálfvirkt, öflugt kælikerfi með síum, sjálfvirkur ádrepari, yfirhitavörn, lokaður rafgeymir og sjálfvirkt hleðslutæki. Ýmsan aukabúnað er hægt að fá eins og fjarstýringu með starti, uppsogi og ádrepara. Auka eldsneytistank úr stáli 20 l., aukaljós fyrir stjórntæki og 12V 55W halogen ljóskastara.

Vélin 3WT61A er eins og áður sagði fjórgengis þriggja strokka og er 29,5 hestöfl eða 22kW. Eldsneytistankur er 10 l. en eyðslan er um 8,5 l/klst. Dælan er eins þrepa háþrýsti túrbínu dæla og snýst 5.650 sn/m við 8 bar.

Við 3ja m. soghæð eru afköst eru 1.130 l/mín við 5,5 bar eða 780 l/mín við 8bar. Stærð er í mm er 670L x 790B x 740H. Þyngdin er 98 kg. Hámarkssoghæð er 9 m.

Við höfum ekki sem komið er verð en það birtist bráðlega.