Tvær Rosenbauer Fox brunadælur afhentar


Nýverið afhentum við tvær Rosenbauer Fox brunadælur til góðs viðskiptavinar okkar en sá á slíka dælu fyrir. Með dælunni fylgdu þrír 2.5 m. A110 gúmmíbarkar vírofnir, A110 sigti og vírsigti. Ef frekari upplýsinga er þörf um dælurnar sendið fyrirspurn á oger@oger.is

Rosenbauer Fox brunadæla

ROSENBAUER FOX BRUNADÆLUR. Vél er af nýjustu kynslóð BMW loftkæld fjórgengis boxervél 2ja strokka 1170 cc. Afl 50 kW við 4500 snúninga. Blýlaust bensín (án blöndunar). Vélin er rafeindastýrð, sjálfvirkt innsog, rafstýrð eldsneytisgjöf, rafkveikja og snúningsstýring. Rafstart með rafal, rafgeymi og mögulegt er einfalt handstart. Eldsneytisgeymir tekur 20 lítra. Umhverfisnotkunarsvið -25°C til +40°C. Ýmsar útfærslur fáanlegar. Við höfum tekið þá gerð inn sem er algengust og mest seld.

Rosenbauer Fox III með gangráð. Hér lýsing á einni gerð. Dælan er af Rosenbauer gerð eins þrepa miðflóttaaflsdæla. Tæringarvarinn léttmálmur  (seltuvarinn). Þurrplötukúpling og hægt að aftengja dælu frá vél. Viðhaldslausar keramískar rennslisþéttingar. Með dælunni er ljóskastari og rafstýrt stjórnborð i húsi yfir dælunni.
Tvívirk sjálfvirk uppsogsdæla "Professional" fullkomlega sjálfvirk en einnig hægt að setja handvirkt inn sem auðveldar uppsog úr t.d. hýbýlum, bátum ofl.

Uppsog tekur aðeins 5 sek. við 3ja m. soghæð eða 20 sek við 7,5 m. soghæð.

Tengi og stýribúnaður. Inntak er með Storz A 100 tengi og úttök eru tvö með skrúflokum og Storz B75 tengjum.

Stærð og þyngd. Burðarrammi er úr áli með hreyfanlegum handföngum á hverjum enda ásamt festingu fyrir hjól.

Fæst í tveimur gerðum með eða án gangráðs.
Stjórnborð/takkaborð. Snertitakkar

Lengd 945 mm
Breidd 735 mm
Hæð 840 mm
Þyngd (þurr) 145 kg
Þyngd með eldsneyti og tilbúin í notkun 167 kg

Afköst við 3ja m. soghæð:
1000 l/min. við 15 bar.
1600 l/min. við 10 bar.
1800 l/min. við 8 bar.
2000 l/min. við 3 bar.
Rosenbauer Fox III kúrfa


Bæklingur

 

 

.