Tvö slökkvilið fá Holmatro Core björgunarsett


Við vorum að afgreiða frá okkur tvö sett af Holmatro Core vökvadrifnum klippisettum til tveggja slökkviliða. Settin voru aðeins mismunandi enda boðið upp á nokkra möguleika miðað við óskir liðanna. Tilboð okkar sem sent var á öll slökkvilið fékk ágætar viðtökur og erum við einstaklega ánægð með árangurinn.

Holmatro klippibúnaður Holmatro klippibúnaður

 

Allur klippibúnaðurinn er af Core gerðinni og NCT (New Car technology). Í 5000 gerðinni er hröðunarloki sem flýtir lokun og opnun þegar ekki er álag á tækjunum um 65%. Í handföngum eru sex öflug díóðuljós (voru tvö) sem lýsa við vinnu. Svo kallaður "I bolti" er í klippunum, en hann er fyrirferðaminni og herðir eingöngu saman hnífana en ekki tjakkarmana. Mun auðveldara aðgengi.

Klippurnar af CU5050i gerðinni voru valdar í þessum settum en þær eru algjör nýjung. Þær eru með hallandi blöðum sem auðveldar aðgengi að póstum og þaki. Mikið vinnuhagræði. Fleiri slökkvilið hafa valið þessa gerð.

Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum um búnaðinn sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.

Holmatro CU5050i Klippur

Klippurnar eru af CU5050i gerð Þessi gerð er byltingagerð nýjung en blöðin hallast sem auðveldar aðgengi að póstum og þaki. Auðveldar alla klippivinnu. Klippir með 141,6 tonna afli og opnast í 182 mm. Þyngdin aðeins 16,2 kg.

Eldri gerðin CU4055 NCT klippir með 103,8 tonna afli, opnast í 202 mm og þyngdin er 19,6 kg. Verulega aukið afl í nýju klippunum eða um 39% og létting um 19% eða fimmtung.

Glennurnar eru af gerðinni SP5250 en þær opnast um 725 mm með 37,3 tonna afli og klemma með 13,8 tonna afli. Þyngd aðeins 16,3 kg.

Ekki var til eldri gerð til samanburðar en sú næst kom SP4240C opnast um 686 mm með 16 tonna afli og klemmir með 6,4 tonna afli. Þyngd 19,2 kg.

Það er því ekki rétt að bera þessar tvær gerðir saman.

Holmatro SP5250 Glennur
Holmatro TR4350C Tjakkur Tjakkar eru að mestu leyti óbreyttir þ.e þessir sundurdraganlegu (telescopic) Gerðin sem valin var er TR4350C en opnunarafl hans á fyrsta strokk er 22,1 tonn en á öðrum strokk 8,3 tonn. Sá fyrsti fer út um 388mm, en sá seinni 354mm svo heildarlengd er 742mm. Heildarlengdin á tjakk og strokkum er 1275mm og í upphafsstöðu er hann 533mm. Þyngd aðeins 16,3 kg. Eldri gerðin er 17,4 kg.
Holmatro CU4007C Klippur litlar og auðveldar að koma við þar sem rými er lítið, en þær klippa með 22.4 tonna afli. Þyngd er 3.8 kg. Stærð 377 x 72 x 131 mm. Blaðopnun 59 mm. Vinnuþrýstingur 720 bar. Fyrir Core slöngur. Holmatro CU4007 klippur
Holmatro SR10 vökvadæla Dælurnar eru af SR10 gerð úr Spider fjölskyldunni. Þriggja þrepa dælur. Fyrir eitt tæki í notkun og eru minnstu dælurnar með fjórgengis Honduvél 2.1 hestafla með eldsneyti til 3ja klst. Þyngd er 14.5 kg. Stærðin er 360x290x423mm. Hljóð 82 dB í 1s. m. fjarlægð. Olíumagn 2840cc.

Með þriggja þrepa dælum eykst hraði og öryggi við klippivinnu.

Margar fleiri gerðir af dælum fáanlegar


Með í settinu eru svo tvær 10 m. langar Core slöngur, A og B kubbasett og svo HRS22 NCT sílsaklossi.

Holmatro Core slöngur Holmatro kubbasett Holmatro sílsaklossar
Holmatro Core slöngur Holmatro B kubbasett   Holmatro STRUT stoðir