Unifighter úðastútar komnir aftur.

Um nokkurt skeið höfum við ekki átt Unifighter úðastútana en stefna okkar hefur verið að vera ávallt með þá á lager.


Unifighter og Unifire stútarnir eru einstaklega vandaðir úðastútar og henta m.a. slökkvliðum, um borð í skip og báta, í ýmis hreinsunarstörf ofl.

Við höfum fengið þessa stúta frá Svíþjóð og verður svo áfram, en þeir hafa hækkað allverulega að undanförnu. Birginn hefur tekið upp á því að skipta út gjaldmiðli og farið frá sænsku krónunni yfir í evrur og lék leikinn til enda og hækkaði innkaupsverð ekki bara um 100% heldur 109%. Þessar gjaldmiðla sviftingar erum við að sjá hjá ýmsum öðrum birgjum okkar og við ekki í stöðu til að mótmæla eða gera athugasemdir við, þökk sé ástandinu.

En við viljum halda áfram að selja þessa stúta og getum að hluta til mildað þessa verðhækkun með stærri innkaupum, en það þýðir eninfaldlega, að ef ein gerð klárast þá verður að bíða þess, að hægt sé að kaupa inn á hagstæðan hátt.

365265 UNIFIGHTER 7 Úðastútur 3/4" 53 - 99 l/mín. (leggur)
365266 UNIFIGHTER 7 Úðastútur 1" 53 - 99 l/mín. (leggur)
365267 UNIFIGHTER 7 Úðastútur 1" 53 - 99 l/mín. (BSP gengjur)
365268 UNIFIGHTER 10 Úðastútur 1" 108-197 l/mín. (BSP gengjur)

Hér eru upplýsingar um allar gerðir af Unifighter og Unifire úðastútum sem við erum með.


.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....