Við heimsóttum China Fire 2008

Við erum nokkur stödd þessa dagana í Peking á sýningunni China Fire 2008, en þar eru sýnendur víðs vegar að, en aðallega þó kínverskir og sýndar eru eldvarnarvörur og búnaður og bifreiðar fyrir slökkvilið.
Við höfum átt frábæra samvinnu við fyrirtæki hér í Kína um nokkurt skeið og var ætlunin með að sækja þessa sýningu, að auka það vöruúrval, sem við bjóðum og efla sambönd okkar.

Ýmsar nýjungar höfum við séð hér og munum kynna eftir heimkomu, en okkur datt í hug að hafa með þessari frétt mynd af nýju slökkvi-farartæki og spurningin er, hvort efnahagur föðurlandsins okkar hafi efni á slíkum búnaði ?

Guðrún, Nína og Erla á leið í útkall ?

Vörn skal snúið í sókn. Frekari fréttir eftir heimkomu.