Við skoðum reykskynjara fyrir húsarafmagn

Alltaf er eftirspurn eftir reykskynjurum fyrir húsarafmagn. Einhvern tíma kemur að því að krafist verði reykskynjara sem ganga á húsarafmagni með rafhlöðu sem varaafl.
Við erum að skoða möguleika á slíkum reykskynjurum sem eru á betra verði en við höfum getað boðið hingað til.

Við erum að skoða skynjara þ.e. sem væru þá jónískir, optískir og svo hitaskynjarar, sem staka skynjara eða samtengjanlega, bæði með þræði og svo þráðlausa.

Nokkrar gerðir koma til greina en við viljum helst finna skynjara sem eru ekki fyrirferðamiklir og í líkingu við þær gerðir sem við bjóðum í dag.

Við höfum þegar fundið þrjár gerðir sem eru stakar gerðir optískra og jónískra en aðeins eina gerð sem er samtengjanleg með öðrum og þá með vír. Varaaflið er Alkaline 9V rafhlaða.

Hér á eftir fara upplýsingar um þessar gerðir. Verðið sem við nefnum er verð m/VSK og miðast við gengi USD 114,00

Gerð SSA-I/P-04 Optískur reykskynjari fyrir 220V/50Hz með 9V Alkaline rafhlöðu sem vara afl. Stærð 126 x 41mm.

Áætlað verð kr. 2.731 m/VSK
Gerð SSA-I/I-04 Jónískur reykskynjari fyrir 220V/50Hz með 9V Alkaline rafhlöðu sem vara afl. Stærð 124 x 42mm.

Áætlað verð kr. 2.604 m/VSK
Gerð SSA-07 Optískur reykskynjari samtengjanlegur fyrir 220V/50Hz með 9V Alkaline rafhlöðu sem vara afl. Stærð 135 x 44mm.

Áætlað verð kr. 3.237 m/VSK


Hér má sjá bækling yfir gerðir sem koma til greina.