Viðurkenningar á eldvarnarbúnaði og búnaði til slökkvistarfs.

Að gefnu tilefni þá vekjum við athygli viðskiptavina okkar á því að við seljum eingöngu búnað eða tæki til eldvarna eða slökkvistarfa sem er  viðurkenndur eftir evrópskum stöðlum og í nokkrum tilfellum NFPA skráningu og viðurkenningu. Stærsti hluti slökkviliða og atvinnuslökkviliðin í landinu eru viðskiptavinir okkar og hafa verið í nánast 30 ár.

Eftir því sem við höfum heyrt og ef rétt er þá eru einhverjir okkur alls óskyldir og sem ganga með þá dillu í maganum, að þeir viti allt um þann búnað sem við bjóðum, þó svo þeir hafi engar upplýsingar eða fái tækifæri til að fylgjast með, hafa nú fundið upp á því að segja að Rosenbauer Heros hjálmarnir séu ekki viðurkenndir. Uppfinningar þessara manna eru fjölmargar og hvað rekur þá til verksins er okkur ekki kunnugt um nema einhverjir hagsmunir séu undir.

Þetta er bull og þvæla og þessum mönnum til ósæmdar hafandi í huga hvaða starfi þeir gegna.

Benedikt Einar Gunnarsson