Wenaas Pbi Kevlar hlífðarfatnaður

Ný kynslóð. Ágæt sala hefur verið á hlífðarfatnaði og fyrr á árinu afgreiddum við til eins viðskiptavinar okkar Wenaas Pbi Kevlar hlífðarfatnað en sá viðskiptavinur okkar hefur valið þennan fatnað allt frá árinu 2003.

Mörg slökkvilið hafa valið Wenaas Pbi Kelvar hlífðarfatnað og í ár bættist við einn stór notandi sem ekki hefur verið með þennan fatnað áður.

Nú er komin á markað þriðja kynslóðin af þessum vinsæla hlífðarfatnaði fyrir slökkviliðsmenn. Fatnaðurinn hefur lést um 30%.

Wenaas Pbi Matrix Kevlar 501 jakkiWENAAS Matrix Airlock 3 Pbi-Kevlar
49626-12201-30
Bæklingur
Wenaas Pbi Matrix Kevlar 501 buxur
WENAAS Matrix
Airlock 3 Pbi-Kevlar
69464-12201-30
Bæklingur

 

Þriðja kynslóðin. Nýtt efni, nýtt snið og útfærsla. Úr Pbi/Kevlar Matrix efnum og með GORE-TEX vatns og öndunarvörn. Þrefalt AirLock efni til fóðrunar. Fatnaðurinn er 30% léttari en fyrri gerðir. Breyttar og bættar styrkingar. Snið er hálfsíður jakki með bak síðara. Buxur eru smekkbuxur. Fatnaðurinn í venjulegri útfærslu og sniði er vel búinn vösum, endurskinsmerkjum, krækjum fyrir hanska og maska og svo frönskum rennilás. Viðurkenndur samkvæmt EN469:2005 og er í raun gerður fyrir mun meiri kröfur en þar koma fram. Pbi Matrix efnið er með ParaArmid efni sem eykur slitstyrk og Belttron sem bætir viðnám gegn stöðurafmagni.

Litur er gulleitur sem er litur efnisins. Það er því ekki hætta á að brenna lit úr efni og vel er sýnilegt þegar fatnaður verður óhreinn. Góð lokun er í háls. Styrkingar með fóðrun á öxlum. Tveir brjóstvasar fyrir fjarskiptabúnað (stillanleg lokun) í jakka ásamt tveimur öðrum hliðarvösum og svo er einn vasi að innan ásamt tveimur vösum fyrir hanska, annar með maskafestingu. Stroff fyrir þumalfingur. Pbi efnisstyrkingar á neðri hluta erma að aftan og frá hné og niður að framan (svart efni). Neðst á jakka og í ermum er vatnhelt Kelvar efni til styrkingar. Rennilás og franskur rennilás til lokunar á jakka og buxum. Rennilásinn er saumaður í sérstykki til að auðvelda opnun og lokun. Á baki jakka er öryggisbeltis festing þ.e. heilt stykki yfirsaumað til að verja öryggisbelti fyrir hita. Franskur rennilás í kraga til að festa á sérhettu. Á hægri ermi og baki hægra megin er númerastykki á frönskum rennilás. Rennilás er í jakkafaldi svo auðvelda megi aðkomu að fóðri til viðgerða.

Þriðja kynslóðin. Buxur. Nýtt efni, nýtt snið og útfærsla. Þrengdar í mittið með snúru. Úr Pbi/Kevlar Matrix efnum og með GORE-TEX vatns og öndunarvörn. Þrefalt AirLock efni til fóðrunar. Fóðruð axlabönd. Beltislykkjur. Tveir hliðarvasar á buxum. Á vinstri vasa er númerastykki á frönskum rennilás. Sérstakur vasi fyrir hníf eða annað neðst á skálm. Hægt að þrengja skálmar með snúru (snjó og vatnsgildra). Pbi efnisstyrkingar frá hné og niður að framan (svart efni). Neðst á skálmum og eins á innanverðum skálmunum er vatnhelt Kelvar efni til styrkingar. Rennilás og franskur rennilás til lokunar.

......Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki......

.