Akron Brass úðastútar og byssur komnar á lager

Við höfum fengið á lager þær gerðir af úðastútum og byssum sem kynntar voru í byrjun september síðastliðnum og afgreitt til þeirra sem gert höfðu pantanir í þessa fyrstu sendingu. Dreifibréf með kynningarverðum var sent þann 11. september til slökkviliðanna. Ef þið hafið áhuga á einhverjum gerðum látið okkur vita. Við eigum ennþá flestar gerðir nema Saberjet gerðina. Hún seldist upp og er væntanleg önnur sending fljótlega.