Áríðandi tilkynning. Flóttagrímur Evacu-8 og Evac+.

Flóttagrímur Evacu-8 og Evac+. Stöðvun notkunar og dreifingar.

Okkur hefur borist tilkynning frá birgja okkar í Kanada þar sem fram kemur að við hefðbundið eftirlit og prófanir á flóttagrímum en það eru gerðirnar EVAC-U8 og EVAC + hafi komið upp á að hugsanlega séu efnahvatar sem geri það að verkum að sé hægt að anda að sé kolmónoxíði. 

Einnig taka þeir fram að engin slys hafi orðið en rétt þyki að nota grímurnar ekki að svo stöddu á meðan nánari rannsókn fer fram. 

Vinsamlegast takið þetta til greina og notið ekki grímurnar þar til að frekari tilkynning berst en við munum fá nánari fréttir og fyrirmæli frá þeim innan 30 daga.

Að svo komnu máli eru ekki frekari upplýsingar á heimasíðu Brookdale varðandi þetta en við setjum hér slóðina á síðuna svo þið getið fylgst með fréttum ef einhverjar verða settar þar inn. Sjá heimasíðu Brookdale.
 

 
EVAC+™


EVAC-U8™