Slökkvibifreiðarnar eru byggðar og útbúnar af slökkvibifreiðaframleiðandum Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi. Undirvagnar eru af gerð Renault Kerax 420.19 4x4.
Heildarburðargeta hvorrar bifreiðar er 19 tonn en í þessari útfærslu er heildarþyngd bifreiðar 17 tonn. Hestöfl pr. tonn eru rúm 24,2 og telst
það mjög kraftmikil slökkvibifreið. Hestöfl vélar eru 412 og hámarkshraði er 125 km/klst. Bifreiðarnar eru með sídrifi, háu og
lágu drifi, læsingum og fl. Hjólbarðar (Michelin) eru heilsárshjólbarðar með nöglum.
Bifreiðarnar eru byggðar eftir evrópskum stöðlum og eru þessar bifreiðar t.d. byggðar eftir EN 1846-1
staðli. Allur búnaður sem er í bifreiðunum er evrópskur og af þeim gerðum sem vel er þekktur hérlendis eins og t.d. Ruberg dælur
(sænskar) sem eru m.a. í slökkvibifreiðum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Fáskrúðsfirði, Hrísey og síðan en
ekki síst á Selfossi. Líklega eru hér um 10 til 15 Ruberg dælur af svipaðri gerð. Dælugeta þessara dælna er sambærileg við
þá dælu sem er í stærri slökkvibifreiðinni á Reykjavíkurflugvelli þ.e. 4.000 l/mín.
Yfirbyggjandi er stærsti framleiðandi slökkvibifreiða í þessum hluta Evrópu. Framleiða allar gerðir
slökkvibifreiða og eins gáma fyrir slökkvilið en ekki körfu og stigabifreiðar. Fyrirtækið var stofnað 1988 og eru starfsmenn þess 340 talsins.
Á ári hverju eru seldar um 250 til 300 bifreiðar og markaðurinn í Evrópu og svo Asíu. M.a.eru þeir undirverktakar við smíði og
yfirbyggingar fyrir framleiðendur í Þýskalandi og á Norðurlöndum.
Hér fer á eftir lýsing á helsta búnaði í bifreiðunum
Í ökumannshúsi sem er af Global gerð þ.e. 400 mm. lengra en venjulegt
ökumannshús eru þrjú sæti, ljós, sjálfstætt hitakerfi (Webasto miðstöð), handstýrður,ljóskastari, hitaðir speglar
og aukaspeglar, ljós í þrepum sem kvikna við opnun hurða, endurskin á hurðum. Sólskyggni á þaki merkt slökkvibíll.
Öryggisbelti í sætum og áklæði á sætum (hreinsanlegt). Fjaðrandi ökumannsæti, sírena með
hljóðnema, blá stróp ljós í grilli að framan og aftan á þaki, lofthorn og strópljósarenna á þaki. Varnargrindur á öllum ljósum. Hljóðmerki tengt bakkljósi. Forrituð Motorola talstöð. Margs konar
viðvörunarljós eins og ef hurðir eða ástig eru opin í yfirbyggingu, Ljósamastur eða úðabyssa uppi, hleðslutenging í sambandi,
ljós í skápum og vatns og froðu tankamælar. Innsetning dælu. Hleðslutæki fyrir talstöðvar. 24V rafkerfi, rafall 2.200W og rafgeymar 2 x
180Ah. Höfuðrofi.
Efni yfirbyggingar úr ryðfríum efnum, trefjaplasti og byggt með samlokuaðferð og
álprófílar sem undirstöður fyrir innréttingar. Yfirbyggingin er eingöngu úr trefjaplasti gegnheilu. Ekkert stál eða
krossviður. Þak er vinnupallur með upphleyptum álplötum, burður 450 kg.
Tveir skápar á hvorri hlið og einn að aftan. Gegnum gangandi fremri skápur á
hlið. Rykþéttar rennihurðir úr áli með læsingum. Ljós kviknar í skápum
við opnun og eins er rofi í ökumannshúsi. Vinnuljós allan hringinn sem gefa 5 til 15 Lux í 1 m. fjarlægð. Hillur og skúffur með læsingar í opinni stöðu. Þær innréttingar sem staðið geta 25 sm.
út frá bifreiðinni eru með endurskin. Öll handföng, hurðir og lokur er gert fyrir hanskaklæddar hendur. Vatnshalli í skápum. Yfirborð þaks og gólf í skápum klætt með upphleyptum seltuvörðum
álplötum.
Við alla skápa eru fellanleg ástig sem um leið eru hurðir fyrir
neðri skápa. Vatnstankur tekur 6.000 l. úr trefjaplastefni með tilheyrandi búnaði. Froðutankur tekur 200 l. og er úr
trefjaplastefnum með tilheyrandi búnaði. Möguleiki á að fylla froðutank frá þaki og svo frá
jörðu. Brunadælan er staðsett að aftan, upphituð frá kælikerfi bifreiðar.
Dæla er seltuvarin úr bronzi og stáli. Tveggja þrepa 4.000
l/mín við 10 bar og 250 l/mín við 40 bar. Hámark vatns á háþrýstiþrepi 150 l/mín. miðað
við slöngustærð. Gerð Ruberg R40/2.5. Froðukerfið er stillanlegt við 1% eða 3% og vatnsmagn. Allar stýringar froðukerfis loftstýrðar.
Háþrýstislöngukefli með 90 m. slöngu 19mm., Castek úðastútur stillanlegur og með froðutrekt. Froða í
gegnum úðastút. Slöngukeflið er bæði raf- og handdrifið.
Úttök frá dælu eru fjögur 65mm til hliðanna inni í skáp á hliðum. Eins er lögn að
háþrýstislöngukefli. Dælan getur fyllt á tank og eru afköst 1.700 l/mín. um 2" lögn. Loftstýring á
loka. Sog er um tvö 125mm Ø inntök og eitt 75mm Ø með spjaldlokum og Storz tengjum. Lögn frá tanki að dælu 125mm
Ø. Mælaborð dælunnar er með sogmæli, lágþrýstingsmæli, háþrýstingsmæli, vatnsmæli, froðumæli,
snúningshraðamæli dælu, neyðarstöðvunarrofa, klst. mæli og viðvörunarljós fyrir olíuþrýsting og
kælivatn.
Eins er viðvörunarljós fyrir loftbólumyndun og ýmis önnur viðvörunarljós í rofum fyrir opnun og lokun svo auðvelda megi þeim
sem vinna við dæluna að sjá hvað sé opið eða lokað. Stór hluti stjórntækja dælunnar eru loftstýrðar.
Dælan er einstaklega vel útbúin. Að vatnstanki er eitt inntak Storz B ásamt kúluloka og
þrýstingsmæli.
Dælan er búin rafstýrðum gangráð sem tryggir stöðugan þrýsting
í þrýstihluta dælunnar. Hann má aftengja og handstýra. Eins er dælan með varnarbúnað gagnvart óhreinindum sem
valdið geta skemmdum. Froðubúnaður er loftstýrður og er frá 1% til 3% á allt afkastasvið dælunnar. Allt
froðukerfið er gert úr efnum sem þola froðu og er úr ryðfríum efnum. Ryðfrítt stál er notað. Hægt er að dreina allt dælukerfið með tveimur lokum. Á soghlið dælunnar er síubúnaður sem verja
á hana óhreinindum bæði frá opnu og vatnstanki. Tryggir örugga notkun dælunnar. Samskonar
miðstöð er í dælurými og ökumannshúsi þ.e. Webasto Air og eins í fremri skáp með lögnum í alla skápa.
Þessar miðstöðvar verja vatns og froðukerfi fyrir frosti allt að –25°C. Frá öftustu miðstöð er barkaúttak
fyrir 15 m. barka sem nota á við að leggja hita að t.d. slysavettvang þar sem hugsanlega þarf að halda hita á slösuðum.
Hraðlosun er möguleg um 125mm Ø í vatnskar frá vinstri
hlið. Losunin er með Storz tengi og spjaldloka. Eins má fylla á vatnstank um
þessa lögn. 3 stk. 5” barkar í 3ja m. lengd eru í sérstökum festingum á þaki. Sigti með loka 125mm og vírkarfa. Storz
minnkanir 125/110.
Ljósamastur er af Fireco gerð 2 x 1000W loftdrifið snúanlegt og ljóskastarar veltanlegir. Rafstöð er af Eismann gerð 4 Kva.og er hún
í einum neðri hliðarskápa.
150 m. Mantex 3/4" slöngur skipt upp í 3 x 50 m. rúllur með D25 kopartengjum snúanlegum eru
til framlengingar á háþrýstikefli.
Stigi af Makros gerð þrískiptur 8,1 m. langur á þaki yfirbyggingar. Stiginn uppfyllir EN
1147 staðal og vegur aðeins 30 kg.
Lausar dælur af Rosenbauer Otter gerð eru á útdraganlegum palli milli ökumannshúss og
yfirbyggingar. Rosenbauer Otter dæla afkastar 1000 l/mín við 4 bar og 1,5 m. soghæð. Sú dæla vegur 66 kg. (tilb.) og stærð er 510L x 560B x
630H.
Innréttingar eru ýmsar í bifreiðunum og má nefna tvöfaldar slönguhillur,
útdraganlega palla fyrir lausa dælu og rafstöð. Snúanlegur veggur fyrir reykköfunartæki. Útdraganlegar skúffur tvær fyrir
úðastúta og lykla ofl.
Allar leiðbeiningar og merkingar á bifreiðunum eru á íslensku og þeir koma þannig frá yfirbyggjanda. Allar tölvugerðar og
smekklegar.
Ólafur Gíslason & Co hf. Eldvarnamiðstöðin er 82 ára gamalt fyrirtæki og
höfum við sinnt þjónustu við slökkviliðin í landinu undanfarin 31 ár en innflutningi og þjónustu á vörum tengdum
brunavörnum í meira en 55 ár. Á síðastliðnum 12 til 14 árum höfum við flutt inn og selt nánast allar nýjar
slökkvibifreiðar til landsins eða 23 bifreiðar og tvær sjúkrabifreiðar. Þessar bifreiðar verða því þær 24. og
25.