Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis fá Tohatsu dælu

Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis fengu í dag Tohatsu dælu ásamt 4" 2,5 m. löngum börkum og sigti m/loka. Þessi gerð er sú afkastamesta í röðinni en hún skilar 2.050 l/mín við 6 bar og 3m. soghæð um 6m. barka. Einstök í sinni röð og þyngd hennar er aðeins 94 kg.
Dælan er búin bæði raf og handstarti. Snúningssogdæla er aðeins 5,5 sek. að sjúga úr 3ja m. hæð um 6m. langan 4" barka. Dælan er vatnskæld um soghlið og er með sjálfvirka yfirhitavörn.

Úttök eru tvö 2 1/2" snúanleg og með lokum. Inntak er 3 1/2" með 4" Storz tengi. Afköst eru miðað við 3ja m. soghæð eins og áður sagði 2.050 l./mín við 6 bar, 1.800 l./mín við 8 bar og 1.500 l./mín við 10 bar. Sem sagt geysiöflug dæla. einstaklega auðveld í notkun og í trefjaplasthúsi. Með fylgir ljóskastari.

Slökkvilið Fjallabyggðar, Orkuveita Reykjavíkur, Slökkvilið Súðavíkur og vertakafyrirtækið Arnarfell hafa með skömmu millibili fengið Tohatsu dælur.  Eins Slökkvilið Langanesbyggðar,  Slökkvilið Grenivíkur og Slökkvilið Borgarbyggðar. Fleiri slökkvilið erum með Tohatsu dælur eins og m.a. Slökkvilið Akureyrar, Fjarðabyggðar og Ölfuss.

Við flytjum dælurnar beint frá Japan og yfirleitt er afgreiðslutími ekki nema um hálfur mánuður. Varahlutaþjónusta hjá Tohatsu er frábær annað er ekki hægt að segja. Einstaklega stuttur afgreiðslufrestur. Klikkið á dælumyndina og fáið allar upplýsingar um allar gerðir af Tohatsu dælum.

Tohatsu VC82ASE brunadæla sú öflugasta