Bylting í
nýjum björgunartækjum frá Holmatro.
Uppfærsla á eldri gerðum.
Enn á ný er Holmatro fyrstir framleiðanda til að koma með nýjungar í
framleiðslu á björgunartækjum. Ekki eina, heldur margar. Þessar nýjungar kynnti Holmatro á Rauða Hananum í vor, þar sem þeir voru
með stóran og glæsilegan bás. En það má eiginlega segja að hann hafi samt ekki verið nógu stór, því þar var alltaf
troðfullt af fólki að kynna sér það nýjasta í björgunartækjum. Enda Holmatro brautryðjandi á því
sviði.
Nýja línan af tækjum sem kynnt var heitir Gerð 4000
og helstu breytingar frá fyrri gerð eru
Nýr miðjubolti í klippum
|
Handfang með ljósum
|
Innbyggður hröðunarloki
|
Meira afl en minni þyngd
|
CORE einnar slöngu tækni
|
CORE er nafnið á nýja einnar slöngu kerfinu frá Holmatro, en það er alger bylting í allri vinnu og öryggi við notkun á
björgunartækjum. Og ein merkasta nýjungin frá því farið var að framleiða vökvaknúin tæki. CORE tæknin byggir á að
í stað hefðbundinna slanga þar sem önnur var notuð fyrir þrýsting að tæki og hin frá, er komin ein slanga.
Slanga þar sem þrýstislanga er inní annarri sem nýtist fyrir vökva frá tæki til dælu.
|
Í stað 4 tengja á hefðbundinni slöngu eru bara 2 tengi á CORE. Innri
slangan sem er þrýstislanga er úr kevlar efni og þolir 4 x vinnuþrýsting er því í raun varin af ytri slöngunni, en þar getur mest
byggst upp 25 bar þrýstingur. Þetta er því í raun mun öruggara kerfi, því á hefðbundnar slöngur getur komið gat.
Lítið nálargat getur orðið til þess að vökvi getur sprautast með 720 kg þrýstingi í hendi eða handlegg björgunarmanns.
Slíkt hefur gerst með hörmulegum afleiðingum. |
|
|
Tengin í CORE kerfinu eru meira en bara tengi, því þau virka líka sem
framhjáhlaupslokar, þannig að vökvinn er sífellt á hringrás frá dælu um slönguna ef tæki er ekki tengt. Um leið og tæki er
tengt lokast fyrir hringrásina og vökvaaflið er strax komið í tækið. |
|
|
CORE slangan er 40% léttari en hefðbundin og vegna þess hversu auðvelt
er að tengja hana og einnig að einungis þarf að tengja 2 tengi í stað 4 áður verður mun fljótvirkara og auðveldara að tengja og gera
"klárt". Tímasparnaður er ca 50%
|
Gamlí tíminn
|
Nýi tíminn
|
50% fljólegra að gera "klárt"
|
Fljótlegra að ganga frá
|
Snúningsliður er á báðum endum slöngunnar og
því nóg að toga í hana til að taka snúning af henni. Eins skiptir ekki máli þó hnútar myndist og brotið sé upp á
eða kröpp sveigja myndist á slöngu.
|
|
|
Að auki þá fer minna fyrir tækjum, því ekki eru slönguendar sem taka
pláss í skápnum.
|
Gamlí tíminn
|
Nýi tíminn
|
Eins og komið hefur fram er tengin í CORE kerfinu eru meira en bara tengi,
því þau virka líka sem framhjáhlaupslokar, þannig að vökvinn er sífellt á hringrás frá dælu um slönguna ef
tæki er ekki tengt. Um leið og tæki er tengt lokast fyrir hringrásina og vökvaaflið er strax komið í tækið. Hægt er því að
aftengja tæki án þess að slá af afli og eins má framlengja slöngur. |
Ekki bara tengi heldur líka framhjáhlaupslokar
|
Slöngurnar eru fáanlegar í 5,10 og 15m. lengdum og nokkrum litum. Hægt að framlengja
|
Góðu fréttirnar eru, að það er hægt að breyta eldri tækjum fyrir CORE
kerfi en þó ekki öllum. Þá er settur nýr endi á handfang, gömlu slöngurnar teknar af og CORE tengi komið fyrir í staðin. Tekur ca
5 mínútur að skipta. Frá okkur fáið þið allar upplýsingar á myndrænuformi og annað það sem til
þarf.
Hérlendis eru það tæki líklega fyrir 1996 sem ekki er hægt að
breyta en það eru tæki sem eru úr 2000 seríunni. Það skal líka litið til þess að þessi tæki eru um leið orðin
úrelt til að eiga við ökutæki af nýrri gerðum þar sem styrkur í póstum hefur verið aukinn. Til fróðleiks þá
klippir 2000 klippur með 29 tonna afli en nýjar klippur úr 4000 línunni með 94,5 tonna afli. Lesið frekar um 4000 línuna hér að
neðan. |
|
Hér hafa verið taldir upp helstu kostir kerfisins. Gallinn er…að ef
skipt er yfir í CORE þarf að henda gömlu slöngunum en hafa skal í huga að hjá mörgum er kominn tími á að skipta út
slöngum og fá nýjar. Allt eftir meðferð og aldri. Ekki eldri en 12 ára.
Við erum með tilboð á breytistykkjum og slöngum, bæði fyrir tæki og
dælur.
Speed valve (hröðunarloki) er nýjung í 4000 gerðinni. Hann er innbyggður í tækin og flýtir lokun og opnun þegar ekki er álag á tækinu um 65%. Ekki er
hægt að setja þennan loka í eldri tæki. |
|
|
Handfang með innbyggðum ljósum, Hver kannast ekki við að vera í lítt eða illa upplýstri aðstöðu við klippivinnu ? Ekki lengur, því
nú hefur Holmatro komið með lausnina á því. Því innbyggð ljós eru í handfangi á 4000 gerðunum. Tvö sterk
díóðuljós sem beinast að vinnusvæðinu eru innbyggð í handfang tækjanna. AA rafhlaða er einnig innbyggð og endist í ca. 6
tíma. Handfang með ljósum er hægt að setja á eldri tæki.
|
I Bolt er enn ein nýjungin frá Holmatro. Búið er að endurhanna miðjuboltann í klippunum og koma
fyrir mun þynnri og fyrirferðarminni bolta. Þessi nýja gerð herðir eingöngu saman klippukjaftana en ekki tjakkarmana líka. Þetta minnkar slit og
þvingun í blöðum og auðvitað nýtir afl tækisins allt í klippugetuna en ekki í innbyrðis þvingun. Annar plús, er að
klippurnar komast mun betur að við þröngar aðstæður. I Bolt er einungis í nýjustu 4000 gerðum af klippum og sambyggðum klippum og
glennum.
|
|
|
Einnig er í 4000 gerðum af klippum ný hönnun á blöðum, svokölluð NCTII blöð. Þau eru sérstaklega hönnuð til að
klippa pósta eins og eru í nýjum gerðum af bílum. Það er þykka marglaga, gerðum úr styrktum málmi. En eins og allir vita eru
gerðar meiri og meiri kröfur um styrkleika bíla. Sem aftur gerir björgunarmönnum óleik, því eldri tæki vinna hreinlega ekki á þessum
nýju styrktu bílum né á stærri bílum. Holmatro er í nánu samstarfi með bílaframleiðendum og stöðugt er unnið að
þróun björgunar- tækjanna og helst það í hendur við þróun og breytingar í bílaiðnaðinum. Því miður
passa nýju blöðin ekki í eldri gerðir, því slaglengd í tjakk er ekki sú sama.
|
|
Hafið í huga, að það er mikilvægt að
gera sér grein fyrir að eldri tæki voru hönnuð fyrir klippi vinnu á þeim tíma. Í dag eru mun sterkari og harðari efni notuð í
bílaiðnaðinum og tækin því ekki nægilega aflmikil. Það er nauðsynlegt að yfirfara blöð í klippum og skipta ef sér
á þeim. Eins þarf að yfirfara slöngur vel. Notkunartími á slöngum ætti ekki að fara mikið yfir 12 ár. Huga að
endurnýjun tækja í samræmi við aflþörf í dag.
4000 gerðin af björgunartækjum sem Holmatro kynnti á Rauða hananum er með öllum þessum nýjungum sem hér hefur verið
lýst, og að auki eru tækin örlítið léttari en um leið aflmeiri.
|
Ný dæla var einnig kynnt. DBU 31 PC Hún er aðeins 25 kg. Og mjög hljóðlát 68 decibel. Hægt er að nota 2 tæki samtímis. Einföld í notkun, með sjálfvirkan
gangráð. Allir hitafletir einangraðir, með ljósum sem lýsa á tengingar og fleiri nýjungum. |
DBU 31 PC
|
Það er staðreynd, að bílaeign hefur aukist mikið, umferð hefur stóraukist. Af þeim sökum eru bílslys eðlilega fleiri. Dauðsföllum
í bílslysum hefur fækkar. Og er það vegna sterkari bíla. En slösuðum fjölgar. Sem segir okkur að það er meira af slösuðu
fólki innilokað í sterkum bílum og þar af leiðandi meira fyrir björgunarmenn að gera. Og þetta er þróun sem heldur áfram.
Þetta kallar líka á þjálfaðri björgunarmenn með búnað sem stenst kröfur nútímans.
|
Holmatro hefur verið í fararbroddi við endurhönnun og framleiðslu á sterkari og öruggari
björgunartækjum. Mikli áhersla er lögð á kennslu og upplýsingar um hvað ber að varast og hvað þarf að vita áður en hafist er
handa við björgun. Bifreiðar í dag eru gjörbreyttar. |
Efnið er breytt
|
|
Þeim atriðum hefur fjölgað sem gæta þarf að eins og loftpúðar eru á mun
fleiri stöðum. öryggisbelti og búnaður þeirra, búnaður með þrýstingi og fl. ofl.
|
|
Styrktarbitar eru fleiri og staðsettir í mörgum tilfellum þar sem björgunarmenn vilja helst komast að hinum
fórnarlambinu. |
Eins og áður sagði verðum við með
tilboðsverð á breytingum á Holmatro tækjum yfir í CORE kerfið og hvetjum menn til að hafa samband við okkur ef áhugi er á að breyta
yfir í þetta byltingarkennda slöngukerfi.