Erlend hækkun á slökkvidufti

Okkur var að berast tilkynning um verulega hækkun á slökkvidufti sérstaklega ABC dufti.        
Erlenda hækkunin er um 50% og segir framleiðandi hana vera vegna hækkana á hráefnismörkuðum. BC duft hækkar minna eða um 23%. Þessar hækkanir verða hjá okkur þegar næsta sending kemur en hún er væntanleg um miðjan maí.  Við munum milda þessar hækkanir eins og okkur er frekast unnt.

Við munum líka skoða aðra framleiðendur með hagstæðari innkaup í huga. Í næstu sendingu fáum við líka D duft en það er duft á málmelda en sala þess er að aukast m.a. vegna áliðnaðrins.

Hér eru upplýsingar um það duft sem við bjóðum.