Fjórar flugvallaslökkvibifreiðar á Keflavíkurflugvöll


Í vikunni komu fjórar flugvallaslökkvibifreiðar fyrir Isavia á Keflavíkurflugvöll en bifreiðarnar eru byggðar á Scania undirvagna af Wawrzaszek í Póllandi.

Í huga okkar er þetta merkilegur og sögulegur viðburður þar sem þetta eru fyrstu evrópsku slökkvibifreiðarnar sem keyptar eru á Keflavíkurflugvöll. Við munum þegar tími vinnst til setja inn á vefsíður okkar frekari upplýsingar um bifreiðarnar. Það er margt mjög nýstárlegt í þessum bifreiðum og búnaður margur hver einstakur. Þessa dagana er verið að kenna á bifreiðarnar.

Wawrzaszek slökkvibifreiðar
Wawrzaszek slökkvibifreiðar
 Wawrzaszek slökkvibifreiðar
 Wawrzaszek slökkvibifreiðar
Wawrzaszek slökkvibifreiðar
Wawrzaszek slökkvibifreiðar