Fleiri bætast í hópinn sem velja HPS Trellchem eiturefnabúninga.

Þessa dagana er Slökkvilið Akureyrar að fá HPS Trellchem eiturefnabúninga en áður hafa fengið slíka búninga Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Brunavarnir Suðurnesja. Sjá frétt og lýsingu á búningum 05.01.05. Þessi lið fengu einnig Trellcover hlífðarjakka, buxur og hanska en sá búnaður hlífir eiturefnabúningunum fyrir frostskemmdum af völdum efna sem fengist er við.
Nokkur sala alla vega meira en venjulega hefur verið í eiturefnabúningum undanfarið og sérstaklega í Trellchem Light búningum sem m.a. hafa farið til slökkviliða, frystihúsa og útgerða. Sjá nánari upplýsingar um þá búninga í frétt 05.11.04 en við viljum vekja athygli á að verð hefur hækkað lítillega nú um áramót.