Fleiri teikningar af slökkvibifreiðum

Við bætum enn inn á síðuna okkar fleiri teikningum af slökkvibifreiðum. Sjá síðuna.

Við viljum kynna Renault Mascott 160.6 sem er létt og öflug slökkvi- og björgunarbifreið sem getur verið með 1.000 l. af vatni og 100 l. af slökkvifroðu. Ökumannshús er tvöfalt fyrir 1 + 1 + 4. Renault Mascott slökkvi- og björgunarbifreiðar eru á undirvagni þar sem heildarþungi er allt að 6 tonnum. Vélarstærðir eru frá 120 hö (270 Nm/1300 sn.) til 160 hö (350 Nm/1500 sn.) og gírkassar at tveimur stærðum 5 eða 6 gíra. Tvær gerðir af Ruberg brunadælum eru fáanlegar beintengdar í þessar bifreiðar. Annars vegar R2-40 sem afkastar 250 l/mín við 40 bar og hins vegar R12 sem afkastar 1.200 l/mín við 10 bar. Aðrir undirvagnar koma til greina eins og MB Sprinter eða Iveco.

Slíkar bifreiðar sem þessar henta vel sem áhafnarbifreiðar fyrir sex manns með búnað eins og t.d. reykköfunartæki, klippubúnaði og það sem til þar til lífbjörgunar úr eldsvoða eða bílslysum. Svona bifreiðar eru komnar í notkun sem útstöðvabifreiðar í Noregi og Svíþjóð.

 

 Staðlaður útbúnaður loftdrifið fullkomið ljósamastur 2 x 1000W og 2,2 kVa rafstöð.


Sjá teikningar



Renault Mascott. Verð frá 7,7 milljónum án VSK. 

 



Hér má sjá slöngukefli og hliðarvegg. Áfylling á vatnstank.

 



Mjög stílhrein bifreið og rennileg yfirbygging úr trefjaplasti

 



Hér má sjá afturhurð opna og pláss í hliðarskápum

 



Hér sést 250 l/mín háþrýst brunadæla (40bar). Snyrtilegt

 



Hér má sjá 1.200 l/mín brunadælu og einfalt froðukerfi. Einstaklega aðlaðandi vinnuumhverfi. Fullkomið stjórnborð dælu. Hér má m.a. sjá stiga.

 



Hér koma svo teikningar af ýmsum gerðum slökkvibifreiða.

TLF6000/200 Renault Kerax 420.19 4x4 4.100mm. Einfalt ökumannshús 6.000 l. vatnstankur. 5 skápar.

TLF11000/200 Renault Kerax 420.27 6x6 3.850+1.350mm. Einfalt ökumannshús 11.000 l. vatnstankur. 5 skápar.

TLF4000/200 Renault Kerax 420.19 4x4 4.100mm. Tvöfalt ökumannshús 4.000 l. vatnstankur. 7 skápar.

TLF4000/200 Renault Kerax 420.19 4x4 4.100mm. Tvöfalt ökumannshús 4.000 l. vatnstankur. 5 skápar.

TLF3000/200 Renault Kerax 420.19 4x4 4.500mm. Tvöfalt ökumannshús 3.000 l. vatnstankur. 7 skápar.

TLF5000/200 Renault Kerax 420.19 4x4 4.500mm. Tvöfalt ökumannshús 5.000 l. vatnstankur. 5 skápar.

TLF3500/150 Renault Midlum 270.14 4x4 3.335mm. Einfalt ökumannshús 3.500 l. vatnstankur. 7 skápar.

TLF3000/150 Renault Midlum 270.14 4x4 3.980mm. Tvöfalt ökumannshús 3.000 l. vatnstankur. 7 skápar.

TLF1000/100 Renault Mascott 160.6 4x2 4.135mm. Tvöfalt ökumannshús 1.000 l. vatnstankur. 5 skápar.

Vekjum athygli á að teikningar þessar eru eign Wawrzaszek og öll eftirprentun eða eftiröpun óleyfileg.

Leitið upplýsinga. Fáið okkur í heimsókn til skrafs og ráðagerða. Við erum fljótir til og getum komið með verðtilboð með mjög svo skömmum fyrirvara.