Frábær björgunarsög

Eftirfarandi frétt fengum við að taka af heimasíðu Slökkviliðs Akureyrar.
Í brunanum í Hrafnabjörgum í síðustu viku kom sér vel keðjusögin okkar.


Þetta er í annað sinn er reynir vel á getu þessa verkfæris, en hún skilaði einnig vel hlutverki sínu í sumarbústaðabruna þar sem rjúfa þurfti mikið til að komast í glæður. Sögin er meðfærileg og gott að beita henni í opnunum á þökum og veggjum.  Sögin var keypt hjá Ólafi Gíslasyni & CO, Eldvarnarmiðstöðinni og getur að líta upplýsingar um hana á eftirfarandi slóð:




http://www.cuttersedge.com/Products/MULTICUTFireRescueSaw/tabid/62/Default.aspx

Þorbjörn Haraldsson

Slökkviliðsstjóri

Sjá heimasíðu Slökkviliðs Akureyrar.