Gamlar lítið notaðar brunaslöngur til sölu

Einn góðra viðskiptavina okkar hefur beðið okku um að skoða möguleika á að selja fyrir sig brunaslöngur sem hann hefur ekki þörf fyrir lengur.
Þetta eru rauðar 2" brunaslöngur gúmmíhúðaðar að utan og innan með Storz tengjum í 20 m. lengjum. Til eru um 30 stk. af þessari stærð.

Hin gerðin eru hvítar 2 1/2" brunaslöngur gúmmíhúðaðar að innan með Storz tengjum. Til eru um 20 stk. af þessari gerð.

Nýjar Ningbo rauðar slöngur eru í dag á kr. 30.871 án VSK. Við teljum því ásættanlegt að þessar fari á kr. 7.718 án VSK. sem er fjórðungur.

Nýjar hvítar Ningbo 3" slöngur kosta kr. 22.238 án VSK.  Sanngjarnt verð fyrir þessar teljum við þá vera kr. 5.560 án VSK. sem er fjórðungur.

Talið er að slöngurnar séu frá 1992 og ekki þrýstiprófaðar nýlega. Þetta eru gerfiefna slöngur.