Gámur af Ningbo slökkvitækjum kominn

Við erum núna að losa tæplega 2000 slökkvitæki og annað eins af eldvarnateppum úr gámi sem var að koma upp að húsi rétt í þessu. Tækin og teppin verða tilbúin til afgreiðslu seinna í dag.
Fyrirliggjandi pantanir verða því afgreiddar í dag og morgun. Þeir sem hafa hug á að panta slökkvitæki eða teppi hafið samband eftir hádegi í dag eða í fyrramálið.

Verð hefur hækkað frá síðustu sendingu um 20% vegna gengisfellingarinnar.