Holmatro lyftipúðar til Eskifjarðardeildar RKÍ.

Í maímánuði fékk Eskifjarðardeild RKÍ lyftipúða af Holmatro gerð.

Fyrir valinu urðu tveir 29 tonna púðar (HLB29) ásamt tvöföldum stjórntækjum (DCV10U), þrýstijafnara (PRV823U), slöngum 10 m. löngum (AH10) og svo slöngum 30sm. löngum til lokunar (ASV8U). Búnaðurinn verður í vörslu slökkviliðs Fjarðarbyggðar sem er með fyrir mjög fullkomið sett af Holmatro björgunartækjum.