Holmatro til Brunavarna Árnessýslu

Nýverið afhentum við Brunavörnum Árnessýslu fullkomið Holmatro björgunarsett með klippu, glennu, tjakk, dælum, petalakippum ásamt nauðsynlegum fylgibúnaði.

Allur búnaður er af Core gerðinni og NTC (New Car technology). Í 4000 gerðinni er hröðunarloki sem flýtir lokun og opnun þegar ekki er álag á tækjunum um 65%. Í handföng eru tvö öflug díóðuljós sem lýsa við vinnu. Svo kallaður "I bolti" er í nýju gerðunum af klippum, en hann er fyrirferðaminni og herðir eingöngu saman hnífana en ekki tjakkarmana.

Holmatro CU4055NTC II (C) Klippur Klippurnar eru af CU4055 C NCT II gerð en það er allra öflugasta klippugerðin sem klippir með 103,8 tonna afli og opnast í 202 mm. Vegur aðeins 19,6 kg.
Glennur eru af SP4240C gerð en þær opnast um 686mm með 21 tonna afli við brún en 25mm neðan við brún með 7,4 tonna afli. Lokunaraflið er 6,6 tonn. Vegur aðeins 18,1 kg. Holmatro SP4240C Glennur
Holmatro TR4350C Tjakkur Tjakkur er af TR4350C gerð en opnunarafl hans á fyrsta strokk er 22,1 tonn en á öðrum strokk 8,3 tonn. Sá fyrsti fer út um 388mm, en sá seinni 354mm svo heildarlengd er 742mm. Heildarlengdin á tjakk og strokkum er 1275mm og í upphafsstöðu er hann 533mm. Vegur aðeins 17,4 kg.
Holmatro CU 4007C Klippur litlar og auðveldar að koma við þar sem rými er lítið, en þær klippa með 22.4 tonna afli. Þyngd er 3.8 kg. Stærð 377 x 72 x 131 mm. Blaðopnun 55 mm. Vinnuþrýstingur 720 bar. Holmatro klippur
Holmatro SR10 vökvadæla Dælurnar tvær eru af SR10 ger úr Spider fjölskyldunni. Þriggja þrepa dælur. Fyrir eitt tæki í notkun og er minnstu dælurnar með fjórgengis Honduvél 2.1 hestafla vél með eldsneyti til 3ja klst. Þyngd er 14.5 kg. Stærðin er 360x290x423mm. Hljóð 82 dB í 1s. m. fjarlægð. Olíumagn 2840cc.

Með þriggja þrepa dælum eykst hraði og öryggi við klippivinnu.


Í settinu voru svo slöngu 10 m. af 10U gerð, A kubbasett og svo silsaklossi.

Holmatro Core slöngur Holmatro kubbasett Holmatro sílsaklossar

 

Til hamingju Brunavarnir Árnessýslu.


.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....