ISS slökkvibifreiðar á Scania undirvögnum

Til gamans setjum við hér tvær myndir af ISS slökkvibifreiðum sem byggðar voru fyrir slökkvilið í Eistlandi og í Danmörku af samstarfsaðila okkar í Póllandi Wawrzaszek.

Þessi bifreið var byggð fyrir slökkviliðið í Allingåbro í Danmörku. Takið eftir hvað spili er haganlega fyrir komið. Hér ná hurðir í yfirbyggingu niður að ástigum.


Þessi bifreið var byggð fyrir slökkviliðið í Kehra í Eistlandi. Bifreiðin er á einföldu að aftan. Hér eru hurðir niður að gólfi. Þessa bifreið ásamt fleirum samskonar sáum við í síðustu heimsókn okkar til Wawrzaszek.