Jafar brunahanar í Dalabyggð


Við afgreiddum fyrir stuttu síðan JAFAR brunahana til Dalabyggðar. Við eigum á lager nokkra hana í einni stærð 4" en fáanlegur er stækkunarflangs 6"

Brunahanarnir eru með einu 4" úttaki og tveimur 2 1/2" úttökum. BSP gengjur að innan í úttökunum. Á hönunum eru Storz brunahanatengi með þríkantró til að koma í veg fyrir stuld á lokum. Stærðir tengja eru DIN 75 og 110.

Hanarnir eru rauðir að lit RAL3000. 1250 mm í jörðu. DIN boraðir flangsar. Þurrir hanar. Í næstu sendingu munum við fá bláa hana (RAL5015).

Afgreiðslutími er frekar stuttur um 3 til 4 vikur ef ekki á lager.

Einstaklega gott verð eða kr. 100.152.- án VSK pr. stk. og stækkunarflangs 4" yfir í 6" á kr. 9.196.-. Storz tengin eru innifalin í verðinu.

Jafar brunahani Jafar bæklingur


Ef frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is

 Jafar brunahanar  Jafar stækkunarflangs