Kansas Wenaas Pbi Kelvar/Goretex hlífðarfatnaður

Á árinu sem liðið er voru nokkur slökkvilið m.a. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins sem keyptu nýja gerð hlífðarfatnaðar, fatnað úr kelvar efnum. Þessi gerð er sú sama og við seldum til íslensku friðargæslunarinnar á Pristína flugvelli í Kósóvó á síðasta ári og árinu þar á undan. Vandaður og góður fatnaður. Við viljum nú kynna þennan fatnað og eins aðra gerð sem við erum með sýnishorn af en það er fatnaður frá sama framleiðanda en úr húðuðu Nomex efni. Lýsing fatnaðarins er hér að neðan.
Við kynnum nýja gerð af hlífðarfatnaði fyrir slökkviliðsmenn. Fatnaðurinn er gerður úr Pbi/Kelvar efnum og með GORE-TEX vatns og öndunarvörn. Snið er í líkingu við þann fatnað sem við nefnum REYKJAVÍK þ.e. hálfsíður jakki með bak síðara. Buxur eru smekkbuxur þ.e. smekkur að framan og aftan. Fatnaðurinn í venjulegri útfærslu og sniði er vel búinn vösum, endurskinsmerkjum m.a. gráum og rauðum litlum endurskins ferhyrningum, krækjum fyrir hanska og maska og svo frönskum rennilás og krækjum til lokunar. Fatnaðurinn er norskur og lofar framleiðandi stuttum afgreiðslutíma. Verð er gott miðað við það sem við höfum áður séð fyrir fatnað úr þessum efnum og af þessum gæðum.

Litur er gulleitur sem er litur efnisins. Það er því ekki hætta á að brenna lit úr efni og vel er sýnilegt þegar fatnaður verður óhreinn. Góð lokun er í háls. Styrkingar með fóðrun á öxlum. Tveir vasar fyrir fjarskiptabúnað í jakka ásamt tveimur öðrum hliðarvösum og svo er einn vasi í fóðri að innan ásamt tveimur vösum fyrir hanska að innan. Franskir rennilásar á brjósti fyrir nafnamerkingar. Stroff fyrir þumalfingur. Á baki jakka er öryggisbeltis festing þ.e. heilt stykki yfirsaumað til að verja öryggisbelti fyrir hita. Pbi efnisstyrkingar ásamt fóðri á neðri hluta erma að aftan og frá hné og niður að framan (svart efni). Rennilás og franskur rennilás til lokunar á jakka og buxum ásamt krækjum á jakka. Buxur þrengdar í mittið með snúru. Axlabönd. Tveir hliðarvasar á buxum. Sérstakur vasi fyrir hníf eða annað neðst á skálm. Hægt að þrengja skálmar með snúru (snjó og vatnsgildra). Neðst á jakka og buxum og eins í ermum er vatnhelt Kelvar efni til styrkingar. 

Ýmislegt má fá til viðbótar eins og merkingar aftan á jakka og annan hliðarvasa á buxum. Rennda hettu utan um hjálm og eins inn í hjálm. Sigbelti í buxur sem rennt er í buxurnar. Axlarstykki í mismunandi litum sem fest er með frönskum rennilás ofl. ofl. 

KANSAS WENAAS NOMEX HLÍFÐARFATNAÐUR 

Frá sama framleiðanda kynnum við hlífðarfatnað fyrir slökkviliðsmenn. Fatnaðurinn er gerður úr Nomex efni (94/5/1) sem er húðað með belgat efnablöndu. Fóður er 100% Nomex stungið (Isomex). Snið er í líkingu við þann fatnað sem við nefnum ÍSLAND þ.e. síð kápa. Buxur eru smekkbuxur þ.e. smekkur að framan og aftan. Fatnaðurinn í venjulegri útfærslu og sniði er vel búinn vösum, endurskinsmerkjum m.a. gráum og rauðum litlum endurskins ferhyrningum, lykkju fyrir hanska og svo rennilás og frönskum rennilás til lokunar. Verð er mjög gott miðað við fatnað úr Nomex efnum. 

Litur er dökkblár. Góð lokun er í háls. Styrkingar með fóðrun á öxlum. Einn brjóstvasi fyrir fjarskiptabúnað í kápu ásamt tveimur öðrum hliðarvösum og svo er einn vasi í fóðri að innan. Franskir rennilásar á brjósti fyrir nafnamerkingar. Stroff fyrir þumalfingur. Á baki kápu er öryggisbeltis festing þ.e. heilt stykki yfirsaumað til að verja öryggisbelti fyrir hita. Rennilás og franskur rennilás til lokunar á kápu og buxum. Kápa er þrengd í mittið með teygju. Buxur þrengdar í mittið með teygju. Axlabönd. Tveir hliðarvasar á buxum. Á hnjám er sérstakt svart Nomex ,,Ripstop’’ efni til styrkinga. Stroff í skálmum að neðan. Í ermum og neðst í buxum að innanverðu er vatnhelt Kelvar efni til styrkingar. 

Ýmislegt má fá til viðbótar eins og merkingar aftan á jakka Rennda hettu utan um hjálm og eins inn í hjálm. Axlarstykki í mismunandi litum sem fest er með frönskum rennilás ofl. ofl. 

Hér hjá okkur í Sundaborg 3 eru sýnishorn sem ykkur er velkomið að líta á eða ef áhugi er á að fá sent til ykkar.