Við höfum leitað nýs birgja eftir að birgi okkar í sjúkratöskum hætti framleiðslu. Um leið leituðum við að meira úrvali sem
við ættum kost á að bjóða sömu aðilum.
Þar fundum við ýmsan búnað eins og sjúkrabörur, börur til hífingar, ketvesti, skröpur ofl.ofl. Allt mjög áhugavert. Vandaður
búnaður á hlægilega lágu verði. Búnaðurinn er m.a seldur til Ameríku og eins til meginlandsins.
Það er reynsla okkar að allur búnaður fyrir slökkvi og sjúkralið og björgunarsveitir er dýr. Hér er annað í boði. Hér
er framleiðandi á búnaði og milliliðalaus viðskipti. Einn ókosturinn sem komið er að við erum ekki komin með sýnishorn af öllu
því sem við höfum áhuga á en það verður í mars komandi. Hinn ókosturinn er að afgreiðslutími til að geta
boðið þessi verð getur verið allt að tveir mánuðir. En verðið er ávinningur.
Með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan fáið þið upp lista með áætluðum verðum. Verðin eru án
VSK. og miðast við gengi USD 127,00
Hér má lesa bréfið sem sent var á ýmsar
björgunarsveitir.
Ef einhver slökkvilið eða björgunarsveitir sem ekki hafa fengið bréf en hafa áhuga á að fá bréf
ásamt ofangreindum upplýsingum og gefa umsögn vinsamlegast sendið beiðni á netfangið oger@oger.is
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar,
fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....