Léttvatnstæki komin aftur ásamt ýmsum vörum

Í síðustu viku fengum við vörusendingu með m.a. léttvatnsslökkvitækum sem vantaði á lager. Ýmsar aðrar vörur fengum við eins og upptalið er hér.
Ningbo brunaslöngur 1 1/2", 2", 2 1/2", 3" og 4" með storz tengjum sem við ætlum að bjóða til slökkviliða á góðu verði. Léttvatn í 25 l. brúsum, gasskynjara, handljós, höfuðljós, krana í kolsýrukúta bæði skrúfaða og með afhleypihandfangi, kolsýrukúta 5 kg., öryggi í slökkvitæki, umferðakeilur, töskur og bakpoka fyrir björgunarsveitir og sjúkralið ofl. ofl.

Við kynnum þetta betur á næstunni.







.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....