motionSCOUT Reykkafaraýlur


Við höfum afgreitt til eins af viðskiptavinum okkar nýjustu gerðina af motionScout reykkafaraýlum. Til eru nokkrar gerðir en fyrir valinu varð hefðbundin gerð með lykli og einnig er ýlan handvirk. Ef frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is

Fyrri gerðir sem við fegnum frá sama birgja voru þannig útbúnar. Ýlurnar eru vatnsvarðar samkvæmt IP67 og vega aðeins 225 g. með rafhlöðum. Viðvörunarhljóð er 95 dB í 3ja metra fjarlægð og að auki eru tvö sterk díóðuljós. Rafhlöður eiga að endast í 200 klst. en í viðvörunarmóti í 10 klst.

Upplýsingar um viðurkenningar koma fram í bæklingnum hér fyrir neðan.

motionSCOUT Reykkafaraýla

 Bæklingur um MSA motionSCOUT Reykkafaraýlur

 

Við getum líka boðið og höfum selt reykkafaraýlur frá Interspiro og Scott.