Ný eftirálýsandi neyðar- og leiðbeiningamerki


Við höfum tekið inn fyrstu sendinguna af eftirálýsandi neyðar- og leiðbeiningar merkjum. Einnig tókum við eitthvað af eftirálýsandi borðum með stömu yfirlagi.

Anro merkingar

Verðin eru svipuð og á þeim merkjum sem við erum með fyrir en þessi merki eru á plastspjaldi og eru velflest með lími á bakhlið.

Eins erum við með nýja gerð af merkinu slökkvitæki og brunaslönguhjól sem er L laga þ.e. þá er merkið beggja meginn og stendur 90°út frá veggnum.

Öll merkin eru samkvæmt ISO 7010 staðlinum. Hér er heimasíðan yfir þau merki sem eru á lager.

Við tókum inn nokkra eftirálýsandi borða að vísu í litlu magni en frá þessum birgja eigum við kost á að fá borða með stömu yfirborði til að setja t.d. í tröppuþrep.

Ef þið hafið áhuga og frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.

Anro merkingar

VÖRULISTI