Ný gerð af höfuðljósi komin.

Við erum komin með á lager nýja gerð af höfuðljósi sem við kynntum fyrir nokkru síðan og ekki skemmir verðið. Framleiðandinn býður fleiri gerðir, en við völdum eina, þar sem við urðum til að ná góðu verði að taka talsvert magn
Ljósin sem í boði voru eru öll eins útlítandi þ.e. rafhlöður í boxi á hnakka og svo stillihnappur fyrir ljós undir ljósi. Ýsmir möguleikar með sambland af díóðum, Xenon perum eða Cree díóðu björtu ljósi. Mismunandi fjöldi ljósa. Eins vatnsvarin, stillanleg ljós ofl.



Við völdum ljós af gerðinni HL1008 sem er með Xenon bjartri peru og svo þremur díóðu ljósum. Ef ljósið er stillt á Xenon peruna lýsir það allt að 150 m. Endingartími Xenon peru er um 10 klst. í stöðugri notkun en lengur ef notað skemur í einu. Endingartími díóðu pera er um 20.000 klst. Við munum vera með Xenon perur á lager.

Takmarkað magn til að byrja með en meira væntanlegt undir lok ágúst.

Búðarverð okkar er kr. 2.980 sem er ótrúlegt verð.

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....