Ný gerð af reyk og hitaskynjurum

Við erum komin með á lager nýjar gerðir af reyk, og hitaskynjurum. Gríðalegt úrval skynjara er fáanlegt frá þessum aðila.

Við erum komin með á lager nýjar gerðir af reyk, og hitaskynjurum. Gríðalegt úrval skynjara er fáanlegt frá þessum aðila.

Við fögnum því að geta fengið staka reyk- og hitaskynjara á 9V rafhlöðu, samtengda þráðlausa reyk- og hitaskynjara fyrir 9V rafhlöður ásamt einföldu stjórnborði og svo reyk- og hitaskynjara samtengjanlega með vír fyrir húsarafmagn en í nýrri byggingarreglugerð er farið fram á slíka skynjara. Frábært verð.

Fljótlega koma allar upplýsingar um þessar gerðir á heimasíðu okkar en í millitíðinni eru hér upplýsingar og vörunúmer fyrir hverja gerð.

Orientalert stakir 9V skynjarar

Orientalert þráðlaust samtengdir 9V skynjarar og stjórnstöð

Orientalert samtengjanlegir með vír 230V skynjarar

Orientalert reyk og hitaskynjarar Jónískir og optískir reyk- og hitaskynjarar stakir sem ganga fyrir 9V rafhlöðu. Litlir um sig (11 sm. í þvermál). Prófunarhnappur, gaumljós, viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlaða sé í skynjara. 3 gerðir af hefðbundnum skynjurum og kolmónoxið skynjari að auki.
Orientalert reyk og hitaskynjarar Jónískir og optískir reyk- og hitaskynjarar þráðlaust samtengjanlegir sem ganga fyrir 9V rafhlöðu. Líka fáanlegur kolmóoxíð skynjari. Litlir um sig (11 sm. í þvermál). Þöggunarhnappur, 16 mismunandi stillingar í hverju kerfi. Hver skynjari getur verið stilltur sem magnari sem eykur drægi. Hámarks drægi milli tveggja er 60m. Mögnun eykur drægi. Ótakmörkuð samtenging með mögnun af mismunandi gerðum. Prófunarhnappur, gaumljós, viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlaða sé í skynjara.

Lítið stjórnborð (2x1,5V) þar sem hægt er að finna þann skynjara í kerfinu sem skynjar, en það gerist með því að þeir skynjarar sem ekki skynja þagna, Hægt að þagga niður í skynjurum (10 mínútur) ef skynjun óþörf og prófa skynjara. Stjórnborðið (9x9x3 sm.) sýnir einnig ef kerfið er í lagi og eins ef viðvörun er í gangi. Stjórnborðið dregur um 100m. í fríu. 868 mHz tíðni.
Orientalert reyk og hitaskynjarar

Jónískir og optískir reyk- og hitaskynjarar samtengjanlegir með vír fyrir húsarafmagn 230V/50Hz og til vara 9V rafhlaða (1 ár). Líka fáanlegur kolmóoxíð skynjari. Litlir um sig (11 sm. í þvermál). Hægt að samtengja allt að 40 stk. af mismunandi gerðum. Prófunarhnappur, gaumljós, straumljós, viðvörun ef rafhlaða er að klárast. Ekki hægt að setja upp nema rafhlaða sé í skynjara.

Undirdós fyrir tengingar fáanleg og eins er hægt að fá sökkul (2 x 1,5V) sem breytir yfir í þráðlausa tengingu. Ef hluti kerfis þarf að vera þráðlaus eða ef óskað er eftir að vera með stjórnborð sem lýst er hér að ofan. Aðeins má tengja einn slíkan þráðlausan sökkul við vírað kerfi.


 

......Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki......