Ný gerð af skúffuskápum væntanleg

Við höfum nú ákveðið að taka Silverline skúffuskápa í sölu í stað Triumph sem við höfum boðið um nokkurra ára skeið. Skáparnir eru nánast eins í útliti og að gæðum en þó eru Silverline skáparnir sterkari og bjóða upp á fleiri möguleika. Verðið á Silverline verður mun lægra. Silverline býður nokkrar gerðir af skúffuskápum í mismunandi styrkleikaflokkum. Þessi gerð sem við völdum nefnist Executive og er önnur í röðinni en hinar sem eru neðar í flokkun þola t.d. ekki eins mikinn þunga í skúffurnar.
Silverline
Skáparnir eru fyrir folíó stærð af skjalapokum en einnig verður hægt að fá rennur í skúffurnar fyrir A4 stærð. Hver skúffa þolir 40 kg. þunga sem er allnokkuð og er hver skúffa útbúin með læsibúnaði sem læsir öllum skúffum nema þeirri sem opin er til að forða því að skápurinn falli um sig. Hverja skúffu er hægt að draga út í full lengd.

Skúffuskáparnir uppfylla þá EN staðla sem fjalla um skúffuskápa og framleiðandi veitir 15 ára ábyrgð á skápunum.

Stærð 4ra skúffu skápanna er 1320 x 458 x 622 mm.

Hér eru frekari upplýsingar um þessa gerð.