Ný gerð slökkvitækja í tilefni opnun slökkvitækjaþjónustumiðstöðvar.

Um miðjan október munum við bjóða nokkrar gerðir slökkvitækja á mjög svo góðu verði í tilefni opnunar slökkitækjaþjónustumiðstöðvar. Tækin eru frá Bretlandi en frá þessum framleiðanda höfum við keypt slökkitækjavagna þ.e. duft og kolsýruvagna. Eins höfum við fengið frá houm neyðarlýsingar og úðakerfi.
    

    

Þær gerðir sem við verðum með til að byrja með eru LP6 6 kg. ABC duft (34A 183B), LF6 6 l. (21A 144B) og LF9 9 l. (21A 183B) léttvatnsstæki, LC2 2 kg. (34B)og LC5 5 kg. (55B) kolsýrutæki og verð verður um 10% lægra en þau verð sem við bjóðum í dag ef allt fer eins og ætlað er.

Dufttækin og léttvatnstækin eru með mæli. Kolsýrutækin eru með stálkútum. Öllum tækjum fylgja veggfestingar og íslenskar leiðbeiningar ásprautaðar. CE merking og upplýsingar verða á ensku.

    

Við munum verða með þessi tæki í framtíðinni og eru þau bæði CE merkt og með EN viðurkenningar. Afköst eru í samræmi við staðla og í nokkrum tilvikum betri.

Það er von okkar að þessum nýju tækjum verði vel tekið af viðskiptavinum okkar